Handbolti

Áttundi sigurinn í röð hjá Þóreyju og Rut

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rut Jónsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir fyrir aftan.
Rut Jónsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir fyrir aftan. Mynd/Stefán
Team Tvis Holstebro, lið Þóreyjar Rósu Stefánsdóttur og Rutar Jónsdóttir, átti ekki í miklum vandræðum með að landa áttunda sigri sínum í röð í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Tvis Holstebro vann þá fjórtán marka útisigur á Aalborg DH í Íslendingaslag, 37-23, en Tvis Holstebro var tólf mörkum yfir í hálfleik, 19-7.

Tvis Holstebro tapaði fyrir naumlega fyrir toppliði FC Midtjylland 7. janúar en það eru eina tap liðsins í síðustu tólf deildarleikjum. Tvis Holstebro er áfram í 2. sæti en nú þremur stigum á eftir Midtjylland sem á reyndar tvo leiki inni.

Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir Tvis Holstebro og Rut Jónsdóttir skoraði tvö mörk. Arna Sif Pálsdóttir skoraði fjögur mörk fyrir Aalborg DH. Álaborgarliðið er í 10. og næstsíðasta sæti deildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×