Handbolti

Hansen leggst undir hnífinn í sumar

Einn besti handboltamaður heims, Daninn Mikkel Hansen, hefur verið í miklum vandræðum með hnéð á sér síðustu mánuði. Hann verður því að fara í aðgerð í sumar.

"Ég get ekki æft eins og ég vill og þetta er mjög pirrandi. Ég verð að vera í lagi næsta vetur," sagði Hansen en hann gekk augljóslega ekki alveg heill til skógar á HM í janúar.

"Ég trúi því að aðgerðin muni hjálpa mér. Ég þarf að finna tíma fyrir hana í fríinu mínu. Ég veit ekki hvort ég fer í aðgerð í Danmörku eða Frakklandi. Ég verð að ræða það við félagið."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×