Handbolti

Björgvin Páll hafði betur gegn Gunnari

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Magdeburg gerði í dag góða ferð til Frakklands þar sem liðið vann öruggan sigur á Nantes, 27-20, í EHF-keppninni.

Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmarkvörður leikur með Magdeburg en Gunnar Steinn Jónsson með Nantes. Hann skoraði eitt mark í leiknum.

Magdeburg er með fullt hús stiga í D-riðli keppninnar en Nantes er í öðru sæti með fjögur stig. Tvö efstu liðin úr riðlunum fjórum komast áfram í 8-liða úrslit keppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×