Handbolti

Guif á toppinn

Kristján Andrésson, þjálfari Guif.
Kristján Andrésson, þjálfari Guif.
Lærisveinar Kristjáns Andréssonar í sænska liðinu Guif komust aftur í toppsæti sænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Liðið vann þá fjögurra marka sigur, 27-23, gegn VästeråsIrsta.

Heimir Óli Heimisson skoraði þrjú mörk fyrir Guif í leiknum en Haukur Andrésson lék ekki með liðinu að þessu sinni.

Guif er með tveimur stigum meira en Lugi en hefur leikið einum leik meira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×