Körfubolti

Enn einn sigurinn hjá Miami

Það stöðvar ekkert meistara Miami Heat í NBA-deildinni þessa dagana. Liðið vann í nótt sinn 25. sigur í röð.

LeBron James stigahæstur í liði Miami eins og svo oft áður. James skoraði 29 stig í nótt, tók 8 fráköst og gaf 8 stoðsendingar.

Miami er nú átta sigurleikjum frá NBA-meti LA Lakers sem var sett árið 1972 en liðið vann þá 33 leiki í röð.

Það gengur ekki alveg svo vel hjá Lakers í ár en liðið missti niður 18 stiga forskot gegn Washington í nótt og tapaði.

Úrslit:

Toronto-NY Knicks 94-99

Orlando-Oklahoma 89-87

Indiana-Milwaukee 1078

Atlanta-Portland 93-104

Miami-Detroit 103-89

New Orleans-Memphis 90-83

Houston-Cleveland 116-78

Dallas-Boston 104-94

San Antonio-Utah 104-97

Phoenix-Minnesota 86-117

LA Lakers-Washington 100-103

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×