Fótbolti

Stelpurnar enda undankeppnina á fjórum heimaleikjum í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Anton
Í gær kom í ljós hvaða lið verða í riðli með íslenska kvennalandsliðinu í undankeppni HM kvenna 2015 en íslensku stelpurnar voru heppnar með riðil og eiga raunhæfa möguleika á að tryggja sér sæti á HM í fyrsta sinn.  

Fulltrúar þjóðanna sem leika í 3. riðli í undankeppni HM kvenna 2015 funduðu strax að loknum drætti og ræddu niðurröðun og leikdaga.  Niðurstaða liggur nú fyrir og leikur Ísland tvo leiki í riðlinum á árinu 2013 – heimaleik við Sviss í september og útileik við Serbíu í október – og átta leiki á árinu 2014.

Síðustu fjórir leikir stelpnanna verða á Laugardalsvellinum þar á meðal leikur við Dani 21. ágúst. Rúmum tveimur mánuðum áður mætast þjóðirnar í Danmörku en það má fyrirfram búast við því að Ísland og Danmörk berjist um efsta sæti riðilsins sem gefur beint sæti á HM.

Leikir Íslands í undankeppni HM kvenna 2015:

26/09/13:  Ísland-Sviss

31/10/13:  Serbía-Ísland

05/04/14:  Ísrael-Ísland

10/04/14:  Malta-Ísland

08/05/14:  Sviss-Ísland

14/06/14:  Danmörk-Ísland

19/06/14:  Ísland-Malta

21/08/14:  Ísland-Danmörk

13/09/14:  Ísland-Ísrael

17/09/14:  Ísland-Serbía




Fleiri fréttir

Sjá meira


×