Fótbolti

Ivanovic skoraði sigurmark Chelsea í blálokin

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Nordic Photos/Getty

Amsterdam verður máluð blá í kvöld eftir að Chelsea tryggði sér sigur í Evrópudeildinni með 2-1 sigri á léttleikandi liði Benfica frá Portúgal. Branislav Ivanovic tryggði Chelsea sigur með marki á þriðju mínútu í viðbótartíma.

Chelsea hefur því orðið Evrópumeistari tvö ár í röð því liðið vann Meistaradeildina í fyrra. Benfica missti að öllum líkindum af portúgalska meistaratitlinum um liðna helgi og nú rann Evrópudeildarbikarinn þeim úr greipum þrátt fyrir flotta frammistöðu.

Benfica réð ferðinni í fyrri hálfleiknum og skapaði sér fín færi. Fremstur í flokki fór Oscar Cardozo en honum virtist fyrirmunað að skora. Bláklæddir liðsmenn Chelsea gátu verið nokkuð sáttir að markalaust var í hálfleik.

Eftir stundarfjórðungsleik í síðari hálfleik komst Chelsea yfir. Petr Cech kastaði boltanum á Juan Mata. Stoðsendingakóngurinn fann landa sinn Fernando Torres sem steig varnarmann Benfica upp, keyrði í átt að marki og kláraði færið af yfirvegun.

Liðsmenn Benfica létu ekki deigan síga og fengu vítaspyrnu þegar hálfleikurinn var hálfnaður. Cardozo steig á punktinn og skoraði af öryggi. Bæði lið fengu færi í kjölfarið en Chelsea komst næst því að skora þegar skot Frank Lampard hafnaði í þverslánni.

Allt stefndi í framlengingu þegar Juan Mata tók hornspyrnu. Serbinn Branislav Ivanovic ætlaði sér að skalla boltann og setti hann í stórkostlegum boga í fjærhornið. Þeir bláklæddu fögnuðu en leikmenn Benfica trúðu ekki sínum eigin augum.

Markið kom á þriðju mínútu í viðbótartíma en aðeins þremur mínútum var bætt við. Cardozo fékk þó eitt færi til viðbótar en Gary Cahill komst fyrir skot hans á síðustu stundu.

Segja má að Chelsea hafi heldur betur bjargað andliti ensku liðanna í Evrópukeppnum á tímabilinu sem senn er liðið. Ekkert enskt lið komst í átta liða úrslit Meistaradeildar en Chelsea, Evrópumeistarar ársins 2012, eru nú einnig handhafar Evrópudeildartitilins.

Titlarnir tveir verða í fórum Chelsea til 25. maí þegar Bæjarar mæta Dortmund í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×