Handbolti

Stelpurnar steinlágu á Selfossi

Rakel Dögg var atkvæðamest í íslenska liðinu.
Rakel Dögg var atkvæðamest í íslenska liðinu. vísir/valli
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik steinlá, 31-43, gegn heims- og Ólympíumeisturum Noregs í vináttulandsleik sem fram fór á Selfossi í kvöld.

Eflaust ljúfur sigur fyrir Selfyssinginn Þóri Hergeirsson sem þjálfar norska liðið.

Eins og tölurnar gefa til kynna var leikurinn mjög hraður og íslenska liðið réð alls ekki eins vel við hraðann og það norska. Íslensku stelpurnar misstu norska liðið þó ekki svona langt fram úr sér fyrr en í lokin.

Rakel Dögg Bragadóttir var atkvæðamest í liði Íslands með átta mörk en Ramune Pekarskyte skoraði sex.  Ásta Birna Gunnarsdóttir, Jóna Margrét Ragnarsdóttir og Hildur Þorgeirsdóttir skoruðu allar þrjú mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×