Handbolti

Róbert Aron með tilboð frá Ademar León

Stefán Árni Pálsson skrifar
Róbert Aron í leik með Fram
Róbert Aron í leik með Fram Mynd / Getty Images
Róbert Aron Hostert, leikmaður Fram, mun líklega ekki leika hér á landi á næsta tímabili en leikmaðurinn hefur verið í skoðun hjá nokkrum erlendum liðum.

Fyrr í sumar kom það fram að þýska liðið Hannover-Burgdorf  væri að skoða leikmanninn en Róbert Aron fór til æfinga til liðsins í maí. Morgunblaðið greinir frá því í morgun að leikmaðurinn sé með tilboð frá spænska stórliðinu Ademar León.

Ademar León er eitt af stærri félögum Evrópu en liðið hafnaði í fjórða sæti spænsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.

Róbert Aron varð Íslandsmeistari með Fram á tímabilinu og var algjör lykilleikmaður í liðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×