Fyrsta mark Nadiu kom ÍBV upp í annað sætið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júlí 2013 19:56 Bryndís Jóhannesdóttir skoraði fyrir ÍBV í kvöld. Mynd/Valli
Velski framherjinn Nadia Lawrence tryggði ÍBV sigur á Íslandsmeisturum Þór/KA þegar liðin mættust í Eyjum í Pepsi-deild kvenna í kvöld. Þetta var fyrsta mark Nadiu í Pepsi-deildinni á þessu tímabili og það kom Eyjaliðinu upp í annað sæti deildarinnar. Eyjakonur héldu jafnframt áfram sigurgöngu sinni á Hásteinsvellinum en liðið hefur unnið alla fjóra deildarleiki sína á vellinum í sumar og skorað í þeim 19 mörk. Þór/KA liðið tapaði hinsvegar þarna sínum fyrsta útileik síðan sumarið 2011 en liðið tapaði ekki leik á útivelli í fyrra (7 sigrar og 2 jafntefli) og var búið að vinna þrjá fyrstu útileiki sína í sumar. Sandra María Jessen náði tvisvar að jafna metin fyrir Þór/KA en það var ekki nóg. Sandra María er hinsvegar að komast á fullt eftir meiðslahrjáð sumar hingað til en hún hefur skorað fjögur mörk í síðustu tveimur leikjum. Shaneka Jodian Gordon (4. mínúta) og Bryndís Jóhannesdóttir (19. mínúta) komu ÍBv tisvar yfir í fyrri hálfleik en í millitíðinni þurfti Mateja Zver hjá Þór/KA að fara meidd af velli. Sigurmark Nadia Lawrence kom síðan á 53. mínútu leiksins eða aðeins fjórum mínútum eftir að Sandra María hafði jafnað í seinna skiptið. Upplýsingar um markaskorara eru fengnar af úrslit.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Fleiri fréttir Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér Sjá meira