Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Andri Broddason skrifar 5. október 2026 20:31 Framkvæmdastjóri KA segir flókið að breyta Íslandsmótinu í fótbolta. Anton/Vísir Mikið hefur verið rætt um hvernig leikjafyrirkomulag Bestu deildarinnar á að vera og virðist hver hafa sína skoðun á málinu. Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, segir málið vera flókið og ekki auðvelt að breyta mótinu.
Sævar birti í dag pistil á fésbókarsíðu sinni þar sem hann gaf sitt álit á málinu og fór hann yfir mörg praktísk mál sem fylgja efstu deildinni í fótbolta. Mótið hefur verið gagnrýnt þar sem Víkingur er orðinn Íslandsmeistari í Bestu deild karla þegar tveir leikir eru eftir. Það tekur þó langan tíma að klára þessa síðustu leiki vegna rúmlega tveggja vikna landsliðsglugga sem stendur núna yfir. Hugmyndir hafa komið fram um að losna við þennan landsliðsglugga og einnig til að fjölga liðum í deildinni og fjölga því leikjum. Sævar hefur þó skýrar ástæður bak við allar ákvarðanir sem hafa verið teknar. Íslandsmótinu var fyrst breytt vegna þess að í samanburði við aðrar deildir í Evrópu var tímabilið á Íslandi stutt og undirbúningstímabilið langt. Tímabilið var rúmlega fimm mánuðir en undirbúningstímabilið var um sex mánuðir fyrir breytingar. Með nýja fyrirkomulaginu, sem var notað í fyrsta skipti árið 2022, var deildinni skipt í tvennt og byrjuðu landsliðsgluggar að vefjast fyrir mótinu. Ekki er hægt að byrja mótið fyrr til að losna við landsliðsgluggann í september vegna þess að það er annar gluggi í lok mars. Engin töfralausn til Hugmyndir hafa vaknað um að leikir ættu að vera spilaðir þéttar á Íslandi en Sævar reiknar dæmið út að sum lið spili nú þegar mjög þétt. „Ef samantekt mín klikkar ekki þá sýnist mér að Víkingur hafi spilað 24 leiki á 99 dögum í sumar á milli landsleikjaglugga í júní og svo aftur í september. Þetta gerir leik á ca. 4,15 daga fresti yfir þetta tímabil,“ segir í færslu Sævars og er því erfitt að spila þéttar en það. Lykillinn að mati Sævars er að gera meira úr undirbúningstímabilinu þar sem mótin sem spiluð eru á veturna séu leiðinleg og úrelt. Það er ekki til nein töfralausn en samræður hans við leikmenn benda til að flestum finnist núverandi fyrirkomulag betra en það sem var fyrir árið 2022. „Málið er mun flóknara en að byrja aðeins fyrr, eða fjölga leikjum yfir sumarið. Ákvörðun um stórar breytingar eins og núna er verið að ræða þarf að skoða út frá mörgum sjónarhornum og er mun flóknara en virðist við fyrstu sýn.“
Besta deild karla Besta deild kvenna Íslenski boltinn KA Fótbolti Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira