Ein magnaðasta frammistaða sem ég hef séð með berum augum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. ágúst 2013 13:00 Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Daníel
Benedikt Guðmundsson, þjálfari liðs Þórs frá Þorlákshöfn í Domnios-deild karla og margfaldur Íslandsmeistaraþjálfari með KR, skellti skemmtilegum pistli inn á fésbókarsíðu sína eftir leik Íslands og Búlgaríu í gærkvöldi. Hann eins og allir sem á horfðu heillaðist af ofurframmistöðu Jóns Arnós Stefánssonar sem spilaði einn besta leik sem íslenskur körfuboltamaður hefur átt í landsliðstreyjunni. „Jón Arnór Stefánsson átti eina mögnuðustu frammistöðu sem ég hef séð á körfuboltavelli með berum augum," segir Benedikt meðal annars í pistli sínum. Benedikt þekkir vel til Jóns Arnórs enda var hann þjálfari Jóns upp alla yngri flokka KR og þá urðu þeir Íslandsmeistarar saman með KR-liðinu vorið 2009. „Ég vona að Íslendingar opni augun fyrir hvers konar gullmoli þessi íþróttamaður er," segir Benedikt um Jón Arnór og bendir á að hann hefði vel getað spilað fyrir Svíþjóð og átt þá meiri möguleika á að komast á stórmót. Vísir fékk leyfi frá Benna til að birta skrifa hans um þessa frábæru frammistöðu besta körfuboltamanns landsins. Hér fyrir neðan má sjá pistil Benedikts:Pistill Benedikts Guðmundssonar um Jón Arnór Stefánsson: Maður verður í einhvern tíma að vinna úr öllum tilfinningunum eftir landsleik kvöldsins. Svakalegur leikur þar sem íslenska liðið gaf allt í verkefnið. Maður er virkilega stoltur af liðinu þrátt fyrir tap. Get ekki beðið eftir næsta leik til að sjá meira. Mér er mjög illa við að taka einhvern út en það er svolítið sem ég verð að koma frá mér eftir þennan leik. Jón Arnór Stefánsson átti eina mögnuðustu frammistöðu sem ég hef séð á körfuboltavelli með berum augum. Ég hef þekkt Jón lengi og get lesið ágætlega í hann. Honum langar ekkert meira á sínum körfuboltaferli en að taka íslenska landsliðið á næsta getustig. Hann sá eins og margir aðrir að það var möguleiki á sæti á stórmóti. Í upphitun og í byrjun leiks hef ég aldrei séð hann né nokkurn annan íþróttamann meira einbeittan. Þegar þetta er skrifað þá hef ég ekki séð lokatölfræði leiksins og mér er eiginlega slétt sama hvernig hún lítur út því frammistaða Jóns var suddaleg. Stig, fráköst og annað sem er nokkuð augljóst er bara brot af því sem hann gerði í kvöld. Krafturinn, viljinn, yfirferðin, einstaklingsvörnin, hjálparvörnin, staðsetningar og fleira undirstrikaði að hann er einn af okkar bestu íþróttamönnum allra tíma. Allt þetta hálf meiddur og ekki nálagt sínu besta formi. Einbeitingin sem hann smitaði í hópinn var svakaleg. Kannski ekki allir sem vita það að eftir æfinguna í gærkvöldi hélt hann magnaða tölu sem hafði greinilega góð áhrif á liðsfélaga og liðið í heild. Svona úr frá þeirri umræðu sem hefur í þjóðfélaginu undanfarið þá eru kannski ekki margir sem vita það að Jón fæddist í öðru landi sem er töluvert stærra og þjóð sem telst töluverð sterkari körfuboltaþjóð. Eflaust hefði sæti í því landsliði gert meira fyrir hann og aukið líkurnar á stærra sviði en Jón hugsar aldrei um sjálfan sig. Þetta er engin ádeila á knattspyrnumanninn sem valdi annað og vona ég að enginn taki þessum skrifum þannig. Þrátt fyrir að spila með heimsklassa leikmönnum ár eftir ár elskar Jón að spila með félögunum í landsliðinu þrátt fyrir misjafnt ástand eftir löng og ströng tímabil í erfiðum deildum. Ég vona að Íslendingar opni augun fyrir hvers konar gullmoli þessi íþróttamaður er. Hann er ekki að leitast eftir einstaklingsverðlaunum eins og íþróttamaður ársins heldur að koma íslenska landsliðinu á stórmót og ég trúi því að það mun gerast næst. Leikmenn eins og Jón, Jakob, Hlynur Logi eru komnir yfir þrítugt. Það tókst ekki að komast á EM 2015 en ég vona innilega að þessi kjarni gefi þessu annan séns. Ég vona að þeir taki næstu undankeppni. Þessi kjarni, þetta þjálfarateymi með einn fremsta íþróttamann íslandssögunar í fararbroddi - ég sé það fyrir mér en eins og Jón segir þá þarf maður að byrja að sjá hlutina fyrir sér og vinna síðan að því. Eftir að hafa horft á manninn í kvöld þá veit ég ekki hvernig hann er ekki búinn að fá riddarakross eða eitthvað álíka. Ég vona að þetta verði ekki og það sama og með Pétur Guðmundsson á sínum tíma að menn geri sér ekki grein fyrir hversu magnaða hluti hann er að gera fyrr en hann er hættur.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Líður alltaf yfir hana þegar hún kemur í mark Sport Einkunnir Íslands: Þrjár heitastar í frostinu Fótbolti Magnús Már í viðræðum við HK Íslenski boltinn Vísar slúðrinu til föðurhúsanna Enski boltinn Albert og Mikael Egill í vondum málum á Ítalíu Fótbolti „Við tókum bara þá ákvörðun að fara í Svanavatnið“ Fótbolti Ísak Bergmann lagði upp gegn Bayern Fótbolti Rekinn fyrir ummæli sín um krabbameinssjúka handboltagoðsögn Handbolti Palace neitar að sleppa takinu á Liverpool Enski boltinn Dagskráin í dag: Íslenskur körfubolti og margt fleira Sport Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 85-84| Njarðvík fyrstar til að leggja Grindavík af velli Ótrúleg dramatík í Garðabæ og á Sauðárkróki Landsliðsmennirnir öflugir í Evrópu Jordan gagnrýnir álagsstjórnun í NBA: Þú hefur skyldu til að láta sjá þig Skiptiborð hjá stelpunum í kvöld Var með skattinn á hælunum þegar hann fór í veðmálabraskið Bíll Shaquille O'Neal enn ófundinn Martin öflugur í góðum sigri Öllum leikjum Bónus-deildar kvenna í kvöld frestað Stólarnir ekki í vandræðum á Egilsstöðum Enginn Lakers-maður hafði náð þessu í meira en 52 ár Veðmál rædd í Körfuboltakvöldi: „Bara ævintýralega heimskulegt“ Kvöddu húsið og Nablinn klifraði í kveðjuskyni Martin naut sín í fræknum sigri á meisturum Bayern Tryggvi lykilmaður í sigri Bilbao Elvar skoraði tólf í naumu tapi Tilþrifin: Varin skot og ótrúlegar körfur Valsmanna Þriðja tapið í röð hjá Jóni og félögum Fáránlegt eða klókt hjá Kristófer? „Ef það má þá gerir fólk það“ Brassi tekur við af Billups „Það er æðislegt að kveðja húsið svona“ Uppgjörið: ÍA - Álftanes 76-74 | ÍA kvaddi Vesturgötuna með stæl Uppgjörið: Stjarnan - ÍR 91-93 | ÍR skellti meisturunum „Ekki æskilegt og ekki það sem körfuboltinn vill standa fyrir“ Nær fimmtán árum og ætlar með Ísland á HM Stjórnarmaður KKÍ auglýsir ólöglega veðmálastarfsemi Handtökur í NBA: Lak upplýsingum um meiðsli James og bað um bita af kökunni Mál Kristófers enn til skoðunar og fleiri komin á borð KKÍ Uppgjörið: Ármann-Keflavík 94-107 | Öruggt hjá Keflvíkingum Daníel: Ég fór í smá ævintýra starfsemi Sjá meira