Áttatíu spreyttu sig en Birni Róberti boðinn samningur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. ágúst 2013 21:45 Björn Róbert eftir landsleik í vetur. Mynd/Instagram
Landsliðsmaður Íslands í íshokkí, Björn Róbert Sigurðarson, leikur með liði Aberdeen Wings í NAHL-deildinni í Bandaríkjunum í vetur. Björn Róbert, sem er fæddur árið 1994, segist hafa fengið fyrirspurnir eftir HM 20 ára landsliða í vetur. Flestar þeirra hafi komið frá Kanada. „Ég var upprunalega á leiðinni í æfingabúðir til Kanada en fór einnig í æfingabúðir hjá Aberdeen Wings. Mér leist mjög vel á þjálfarann, liðið og úr varð að ég tók tilboði þeirra," segir Björn Róbert við Vísi. Um áttatíu leikmenn spreyttu sig hjá Aberdeen Wings en svo fór að aðeins einum var boðinn samningur, Birni Róberti. Björn Róbert lék með Hvidövre í Danmörku á síðasta ári en færir sig nú vestur um haf. Hann segist stefna á að komast að hjá háskólaliði vestanhafs í framhaldinu. Hann mun stunda nám í Aberdeen samhliða íshokkíðikun sinni. „Ég er mjög spenntur og hlakka mikið til að takast á við þetta. Ég met möguleika mína góða hjá liðinu og líst vel á þjálfarann," segir Björn Róbert. Hann segir NAHL-deildina eina þá elstu og öflugustu ungmennadeildina vestanhafs með 24 félögum víðsvegar um Bandaríkin. Patrick Kane, ein aðalstjarna Chicago Blackhawks, lék tvö tímabil í deildinni á sínum tíma.
Íþróttir Mest lesið Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Enski boltinn Bruno til bjargar Enski boltinn „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Íslenski boltinn Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Fótbolti Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Fótbolti Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga Fótbolti Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Fótbolti Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Fótbolti Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Fleiri fréttir Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ósigraður Kolbeinn kominn með næsta andstæðing Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Hattarmenn senda Kanann heim Ísak hættur með ÍR Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Sjá meira