Sport

Dag­skráin: Níu klukku­tíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alexis Mac Allister fagnar marki sínu fyrir Liverpool ásamt hinum unga Rio Ngumoha.
Alexis Mac Allister fagnar marki sínu fyrir Liverpool ásamt hinum unga Rio Ngumoha. Getty/Nick Potts

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á sunnudögum.

Enska úrvalsdeildin verður í sviðsljósinu eins og vanalega á helgum en bæði Liverpool og Manchester United spila leik sinn í dag. Alls verða fimm leikir í beinni og í lok dagsins mun Sunnudagsmessan gera upp alla umferðina.

Eins og síðustu sunnudaga verða þrír NFL-leikir í beinni en fjörið hefst með leik Saints og Steelers frá París og svo tekur við leikur Falcons og 49ers en veislan endar svo með leik Lions og Packers. NFL Red Zone fylgist líka með öllum leikjunum á sama tíma.

Í kvöld verður síðan Texas-kappaksturinn í Formúlu 1 þar sem Kimi Antonelli á tölfræðilega möguleika á því að tryggja sér heimsmeistaratitilinn.

Við fáum einnig beina útsendingu frá sænska kvennafótboltanum og þá verður Íslendingaliðið Magdeburg í beinni í þýska handboltanum.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport

Klukkan 13.40 hefst bein útsending frá leik Manchester United og Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Klukkan 16.15 hefst bein útsending frá leik Sunderland og Leeds í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Klukkan 18.35 hefst Sunnudagsmessan þar sem farið verður yfir alla leiki umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Sýn Sport 2

Klukkan 13.30 hefst bein útsending frá leik Saints og Steelers í NFL-deild ameríska fótboltans.

Klukkan 16.55 hefst bein útsending frá leik Falcons og 49ers í NFL-deild ameríska fótboltans.

Klukkan 20.20 hefst bein útsending frá leik Lions og Packers í NFL-deild ameríska fótboltans.

Sýn Sport 3

Klukkan 13.40 hefst bein útsending frá leik Liverpool og Brighton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Klukkan 16.55 hefst NFL Red Zone útsending þar sem fylgst verður með öllum leikjum í NFL-deild ameríska fótboltans samtímis.

Sýn Sport 4

Klukkan 13.40 hefst bein útsending frá leik Crystal Palace og Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Sýn Sport 5

Klukkan 13.40 hefst bein útsending frá leik Hull og Brentford í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Sýn Sport Viaplay

Klukkan 10.50 hefst bein útsending frá leik AIK og Rosengard í sænsku kvennadeildinni í fótbolta.

Klukkan 12.55 hefst bein útsending frá leik Löwen og Magdeburg í þýsku Bundesligunni í handbolta.

Klukkan 19.30 hefst bein útsending frá Formúlu 1-kappakstrinum í Texas í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×