Körfubolti

Ekki sést í þrjá daga

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Odom og Khloe Kardashian, eiginkona hans.
Odom og Khloe Kardashian, eiginkona hans. Nordicphotos/Getty

Körfuknattleiksmannsins Lamar Odoms er leitað af fjölskyldu sinni. Odom hefur ekki sést í þrjá daga en kappinn glímir við eiturlyfjavanda.

TMZ hefur greint frá vandamálum Odom undanfarna daga en hann var lagður inn á meðferðastofnun síðastliðið sumar til þess að vinna bug á vanda sínum. Odom spilaði ágætlega með Los Angeles Clippers í vetur.

Samkvæmt heimildum TMZ vildi fjölskylda Odom halda fund með honum og benda honum á að vanda hans. Nú telja fjölskyldumeðlimir að hann sé í mikilli neyslu en ekki hefur heyrst til hans í á fjórða sólarhring.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×