Allegri hefur áhuga á Kaka Kristinn Páll Teitsson skrifar 1. september 2013 11:00 Kaka í leik með AC Milan Mynd/Gettyimages
Brasilíumaðurinn Kaka var áður fyrr efstur á lista yfir menn sem andstæðingar þyrftu að stöðva. Í dag er hann hinsvegar aðeins varaskeifa í stjörnuliði Real Madrid og ætlar að finna sér nýtt lið í félagsskiptaglugganum. Þegar Kaka var keyptur til Real árið 2009 var um félagsskiptamet að ræða sem var svo stuttu síðar bætt þegar Real keypti Cristiano Ronaldo. Ásamt Ronaldo átti Kaka sem hafði leitt AC Milan til bæði sigurs í Serie A og Meistaradeild Evrópu að mynda óstöðvandi sóknarlínu. Síðan þá hefur margt breyst, Kaka hefur aðeins verið skugginn af sjálfum sér hjá Real og spilaði aðeins 27 leiki á síðasta tímabili. Allt bendir til að Gareth Bale sé næstur inn um dyrnar hjá Real og því myndi spiltími Kaka eflaust vera af skornum skammti og hefur hann því beðið um sölu frá félaginu. Fjölmiðlar voru fljótir að orða Kaka aftur við AC Milan þar sem hann í guðatölu meðal stuðningsmanna eftir árin sex hjá félaginu. Massimiliano Allegri var hóflega bjartsýnn þegar hann var spurður um Kaka en efast er um hvort AC Milan eigi einfaldlega efni á Kaka. „Ef hann kæmi aftur yrði AC Milan strax sterkari því hann er leikmaður með mikla hæfileika. Hann myndi bæta bæði sóknarleikinn og móralinn í hópnum þrátt fyrir að hafa lítið spilað síðustu tvö ár. Ég er bjartsýnn á hvað klúbburinn mun gera á næstu dögum," sagði Allegri.
Ítalski boltinn Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Fleiri fréttir Dagný orðin sendiherra West Ham Apollon - FH | Fyrsti Evrópuleikur FH „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira