Jakob og Hlynur áfram í hópi þeirra bestu í Svíþjóð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. október 2013 17:28 Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson. Mynd/Valli
Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson, leikmenn Sundsvall Dragons, eru áfram í hópi bestu leikmanna sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta en topp hundrað listinn var gefin út á heimasíðu sænska sambandsins, basketsverige.se. Sænska deildin hefst í kvöld en fyrsti leikur Drekanna er á föstudagskvöldið.Jakob Örn Sigurðarson er talinn vera þriðji besti leikmaðurinn á eftir þeim James JJ Miller hjá Boras og Liam Rush hhá Uppsala. Jakob var efstur á listanum í fyrra en lækkar um tvö sæti núna. Í umfjölluninni er talað um Jakob sem hreinræktaðan sigurvegara og að hann sé Mr Clutch, það er leikmaður sem er alltaf bestur á lokamínútunum í jöfnum leikjum. Það er líka talað um að Jakob sé sjaldan meiddur og að hann komi alltaf til greina sem besti leikmaður deildarinnar.Hlynur Bæringsson er í 9. sætinu á listanum en hann lækkar sig líka um tvö sæti eins og Jako. Hlynur er sagður vera einn af allra bestu frákastamönnum deildarinnar og þá er talað um að hann sé gríðarlega mikilvægur fyrir Peter Öqvist, þjálfara Sundsvall. Í umfjölluninni um Hlyn er honum einnig hrósað fyrir baráttu og það nefnt því til rökstuðnings að það spili fáir af meiri krafti en hann. Hlynur er kallaður íslenska stálið og að hann sé leikmaður sé erfitt og oft ekki skemmtilegt að glíma við undir körfunni.Ægir Þór Steinarsson, nýjasti leikmaður Sundsvall Dragons, er í 44. sæti á listanum en Ægir Þór missti af leikjum landsliðsins í haust vegna meiðsla. Hann lék áður með Fjölni og var í bandarískum háskóla síðasta vetur. Sundsvall varð deildarmeistari síðasta vor en náði ekki að tryggja sér sænska meistaratitilinn í úrslitakeppninni.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Adam Ægir mættur til KA Íslenski boltinn Fleiri fréttir Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ Sjá meira