Hamarskonur hefndu fyrir bikartapið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2013 19:32 Di'Amber Johnson var illviðráðanleg í seinni hálfleiknum. Mynd/Pjetur
Hamarskonur styrktu stöðu sína í 4. sæti Dominos-deildar kvenna í körfubolta eftir átta stiga sigur á Val, 72-64, en bæði lið voru með tíu stig fyrir leikinn. Valur sló Hamar út úr bikarnum á dögunum en Hamarskonum tókst að hefna fyrir það í Frystikistunni í Hveragerði í kvöld. Hamar hefur nú unnið báða deildarleiki sína á móti Val í vetur og það gæti komið sér vel ef innbyrðisviðureignir munu ráða röð liðanna í lokin. Di'Amber Johnson skoraði 23 af 25 stigum sínum í síðari hálfleik en Marín Laufey Davíðsdóttir var með 22 stig og Fanney Lind Guðmundsdóttir skoraði 11 stig. Kristín Sigurjónsdóttir skoraði 24 stig fyrir Val, Guðbjörg Sverrisdóttir var með 16 stig og Jaleesa Butler bætti við 13 stigum og 12 fráköstum. Valsliðið byrjaði leikinn frábærlega og var komið í 17-7 eftir rúmlega sex mínútna leik. Hamar náði að minnka muninn í fimm stig, 14-19, fyrir lok fyrsta leikhlutans. Hamar skoraði 17 af fyrstu 19 stigum annars leikhluta og komst tíu stigum yfir, 31-21. Marín Laufey Davíðsdóttir og Fanney Lind Guðmundsdóttir skoruðu báðar sex stig á þessum frábæra kafla Hamarsliðsins. Hamar var fimm stigum yfir í hálfleik, 37-32, en Valskonur tóku aftur frumkvæðið með því að vinna fyrstu átta mínútur seinni hálfleiksins, 17-6. Staðan var síðan 51-51 fyrir lokaleikhlutann. Hamar náði fimm stiga forskoti í upphafi fjórða leikhlutans og hélt frumkvæðinu síðan út leikinn.Hamar-Valur 72-64 (14-19, 23-13, 14-19, 21-13)Hamar: Di'Amber Johnson 25/6 fráköst/7 stoðsendingar, Marín Laufey Davíðsdóttir 22/8 fráköst, Fanney Lind Guðmundsdóttir 11/6 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir 9/5 stoðsendingar, Kristrún Rut Antonsdóttir 3, Regína Ösp Guðmundsdóttir 2.Valur: Kristrún Sigurjónsdóttir 24/4 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 16/7 fráköst, Jaleesa Butler 13/12 fráköst, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 5/10 fráköst, Rut Herner Konráðsdóttir 2, Þórunn Bjarnadóttir 2, Hallveig Jónsdóttir 2.
Dominos-deild kvenna Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Íslenski boltinn McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Enski boltinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Fleiri fréttir LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Sjá meira