Körfubolti

Leik frestað vegna reyks í höllinni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn Minnesota ganga af velli.
Leikmenn Minnesota ganga af velli. Mynd/AP
Frestað varð leik San Antonio Spurs og Minnesota Timberwolves í NBA-deildinni í nótt af heldur óvenjulegri ástæðu.

Leikurinn átti að fara fram í Mexico City Arena í Mexíkó en hætta varð við þegar að bilun í rafal olli því að höllinn fylltist af reyk. Hún var rýmd um 45 mínútum áður en leikurinn átti að hefjast.

Spila átti í Mexíkó til að vekja athygli á NBA-deildinni utan Bandaríkjanna og Kanada en nú er ljóst að þegar þessi lið mætast loksins verður það á heimavelli Minnesota í Minneapolis.

Sjö aðrir leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt.

Hér fyrir neðan má sjá myndband sem Dave Benz, lýsandi hjá Timberwolves TV, birti á Instagram-síðunni sinni.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×