Körfubolti

Rondo má byrja að æfa á nýjan leik

Rajon Rondo.
Rajon Rondo.
Læknar Boston Celtics hafa gefið Rajon Rondo grænt ljós á að byrja að æfa af fullum krafti á nýjan leik. Hann ætti því að geta spilað aftur í janúar.

Rondo meiddist illa á hné þann 25. janúar og þurfti að gangast undir aðgerð. Endurhæfingin hefur síðan tekið sinn tíma.

"Við verðum að sjá hvernig hann bregst við æfingaálagi áður en við getum neglt nákvæmlega hvenær hann spilar fyrir okkur," sagði Brad Stevens, þjálfari Celtics.

Rondo hefur fjórum sinnum verið valinn í stjörnuleik deildarinnar og var stoðsendingakóngur deildarinnar síðustu tvö tímabil.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×