Skoðun

Af­nám verð- tryggingarinnar

Eygló Harðardóttir skrifar

Verðtryggingin er vinsælt umræðuefni á Alþingi, hvort hún eigi að vera eða hvort hún eigi að fara. Ýmsar hugmyndir hafa skotið upp kollinum í gegnum tíðina en það virðist sem svo að þegar nær dregur kosningum verði allt í einu flestir sammála um að verðtrygging sé af hinu vonda. Eins og hendi væri veifað tala allir um að það sé réttast að bjarga heimilum og skuldurum undan þessum vágesti.



550 milljörðum hefur verið bætt við lán heimilanna frá bankahruninu. Tölur sýna að allt að 50% heimila eigi erfitt að ná endum saman. Það er ekki hægt að verja verðtrygginguna lengur, þann lið sem vegur hvað þyngst þegar kemur að skuldavanda heimilanna og er að keyra þau smátt og smátt í þrot.



Tillögur og þor

Nú þarf að taka af skarið og byrja að hugsa um heimilin og fólkið í landinu og þar hefur Framsókn tillögur og þor. Við höfum komið með lausnir gegn verðtryggingunni og staðið með heimilum landsins. Bætt staða heimilanna er ekki einhvers konar kosningavarningur í okkar huga heldur er það okkar baráttumál. Okkar framtíðarsýn.



Nú hefur Framsókn lagt fram í þriðja sinn tillögur á Alþingi til að koma böndum á verðtrygginguna. Það viljum við gera með því að setja 4% þak og þar með halda vexti hennar í skefjum. Þessari tillögu höfum við trú á, þessi leið væri fyrsta skrefið í átt að afnámi verðtryggingarinnar í heild.



Fyrr í haust kynntum við annað mál sem lýtur að skuldum heimilanna, tillögu sem gengur út á það að þeir sem geta greitt af lánum sínum fá aukið svigrúm til að borga höfuðstólinn hraðar niður með því að nota skattkerfið. Við viljum koma til móts við heimilin með einhverjum hætti með því að skapa hvata fyrir fólk til að greiða af lánunum. Okkur finnst ekki nóg gert fyrir þann hóp sem stendur samviskusamlega í skilum hver einustu mánaðamót.



Með andstöðu núverandi ríkisstjórnar er ljóst að þau mál sem Framsókn hefur lagt fram til aðstoðar millistéttarinnar munu ekki ná í gegn fyrir kosningar.



Afnám í áföngum

Við hvetjum kjósendur því til að leggjast á árar með okkur í vor. Við viljum afnema verðtrygginguna í áföngum og byrja á því að binda hana við ákveðið þak. Við viljum fara hér í mjög ákveðna og massífa atvinnuuppbyggingu. Það umhverfi sem við erum með í dag og höfum verið í langan tíma er ekki boðlegt. Á þessu verður að vinna og það þarf að gera í nokkrum aðgerðum. Ástandið lagast ekki á einni nóttu heldur þurfa allir að leggjast á eitt til að ná settu takmarki. Lykillinn að góðum árangri er sterk forysta með rétta framtíðarsýn. Framsókn horfir björtum augum til framtíðar. Við höfum lausnirnar og þorið til að koma þeim í framkvæmd.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×