Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar 30. október 2026 10:46 Ríkissjóður á að vera í jafnvægi, varasjóðir okkar þurfa að vera í stakk búnir til að mæta áföllum og taumhald þarf að hafa á skuldasöfnun ríkisins. Þetta er undirstaða þess að ríkið geti veitt þjónustu, létt undir með heimilum og tryggt almenna velsæld. Skattfrjáls ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán er eitt gagnlegasta úrræði sem stjórnvöld hafa komið á fót fyrir íslensk heimili. Úrræðið hefur stutt við eignamyndun fjölskyldna í þeim brotsjó sem verðbólguumhverfi fljótandi krónu hefur reynst þeim. Stærsti gallinn var hins vegar sá að úrræðið var sett á til bráðabirgða og aðeins framlengt um skamman tíma í senn. Það skapaði óþarfa óvissu í heimilisbókhaldinu. Heimilin eiga skilið meiri vissu og fyrirsjáanleika. Þess vegna höfum við fest úrræðið varanlega í sessi, þannig að hverjum og einum standi það til boða í samanlagt 10 ár. Samhliða þessu gerðum við tvær aðrar mikilvægar breytingar: Jafn réttur óháð hjúskaparstöðu: Fram að þessu hafa einstaklingar getað nýtt 500 þúsund krónur af séreignarsparnaði sínum skattfrjálst á ári en hjón og sambúðarfólk samanlagt 750 þúsund krónur. Framvegis mun sama hámark gilda um alla án tillits til hjúskaparstöðu, 500 þúsund krónur á mann. Fjárhæð heldur verðgildi: Í stað þess að hámarksfjárhæðin standi í stað og rýrni að raunvirði, líkt og hún hefur gert frá upphafi, mun hún framvegis taka árlegum hækkunum í samræmi við vísitölu neysluverðs. Úrræðið hefur verið framlengt tímabundið í allnokkur skipti og féll síðast úr gildi 1. janúar 2026. Í hvert sinn hafa heimilin þurft að bíða í von og óvon eftir því hvort löggjafinn myndi endurnýja heimildina. Við höfum bundið enda á þessa óvissu í eitt skipti fyrir öll sem eru afar jákvæðar fréttir fyrir þá 55.000 einstaklinga sem hafa ekki fullnýtt rétt sinn. Ég hvet fólk til að hafa hraðar hendur. Með því að sækja um fyrir 1. desember næstkomandi er hægt að óska eftir því að nýtingin gildi afturvirkt frá síðustu áramótum. Þannig getur fólk lækkað höfuðstól lána sinna um allt að 500 þúsund krónur á þessu ári. Náist það ekki fara engin réttindi þó forgörðum, því með nýja fyrirkomulaginu er miðað við samanlagðan nýtingartíma en ekki samfelldan. Ábyrg ríkisfjármál snúast á endanum um fólkið í landinu. Þau skapa svigrúmið sem þarf til þess að hið opinbera geti staðið þétt við bakið á heimilunum. Með því að festa séreignarúrræðið í sessi, jafna rétt hjóna og verja fjárhæðina gegn verðbólgu færum við fjölskyldum landsins raunverulegan fyrirsjáanleika og sterkari grunn til að byggja á. Höfundur er fjármála- og efnahagsráðherra og varaformaður Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Daði Már Kristófersson Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Fjármál heimilisins Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Skoðun Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Sjá meira
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar