Ilmefnalaust og ofnæmisprófað fyrir börnin 21. febrúar 2013 06:00 Guðrún Húnfjörð Mynd/GVA
Því fyrr sem börn komast í tæri við ilmefni, þeim mun hættara er þeim við ofnæmi seinna á lífsleiðinni. Fjögur ofnæmistilfelli af hverjum tíu þróast í barnæsku en með því að velja þvottaduft, húðkrem, sápur og annað sem inniheldur ekki ilmefni er hægt að draga verulega úr hættunni á að börn þrói með sér ofnæmi,“ segir Guðrún Húnfjörð, vörumerkjastjóri hjá Nathan & Olsen. Fyrirtækið flytur inn umhverfisvænar og ofnæmisprófaðar vörur frá Neutral sem eru Íslendingum að góðu kunnar. "Við foreldrar viljum auðvitað gera allt til að hugsa vel um börnin okkar og barnalínan frá Neutral fellur vel að því markmiði,“ segir Guðrún. Hún bendir á að barnalínan sé algerlega án ilmefna, litarefna, parabena og annarra óþarfa aukaefna. "Í línunni finnur þú bæði sjampó og baðsápu sem eru þróuð sérstaklega fyrir ungabörn, ásamt barnaolíu sem er hrein jurtaolía og hentar hvort sem er í baðið, í ungbarnanuddið eða í þurran hársvörð ungbarna,“ lýsir Guðrún. Í línunni er húðkrem sem má nota hvar sem er á líkama barnsins en Neutral býður einnig upp á sérstakt bossakrem sem inniheldur sink. "Svo eru það blautþurrkurnar sem henta vel í bleiuskiptin sem og til að þurrka litla putta og lítil andlit þegar vatn og þvottapoki eru ekki við höndina.“ Guðrún segir ekki síður nauðsynlegt að hugsa út í hvaða þvottaefni er notað til að þvo föt barna. "Fötin liggja á húð barnsins allan daginn og því er mikilvægt að þvottaefnið og mýkingarefnið séu vel valin. Neutral þvotta- og mýkingarefni eru mild og örugg fyrir viðkvæma húð barna,“ bendir Guðrún á. Til að lengja líftíma barnafatanna, sem gjarnan þarf að þvo oft og mikið, er hægt að velja mismunandi gerðir af þvottaefni. Í Neutral-merkinu er hægt að fá þvottaefni sérstaklega fyrir hvítan, svartan eða mislitan þvott. Neutral-vörurnar eru þróaðar í samstarfi við dönsku Astma- og ofnæmissamtökin og Astma- og ofnæmisfélag Íslands mælir með Neutral-vörunum. Allar barnavörur Neutral eru Svansmerktar sem er trygging fyrir því að gæði þeirra og virkni er jafn góð eða betri en í sambærilegum vörum. "Þú þarft því ekki að þekkja öll innihaldsefnin og hafa áhyggjur af því að barnið þitt komist í snertingu við skaðleg efni, það er búið að kanna það fyrir þig,“ segir Guðrún. Á heimasíðunni Neutral.is er að finna ítarlegar upplýsingar um vörurnar ásamt góðum ráðum um hvernig hægt sé að fyrirbyggja ofnæmi hjá börnum.
Mest lesið Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga Viðskipti erlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Viðskipti innlent Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Viðskipti innlent „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Fleiri fréttir Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira