Valdið færist til Jón Ormur Halldórsson skrifar 21. mars 2013 06:00 Flestum sem fá pólitísk völd virðist koma á óvart hvað erfitt er að beita þeim til gagns. Þetta er ört að versna en er þó ekki nýtt. Möguleikar stjórnmálamanna til að ráða niðurstöðum með því valdi sem þeim er gefið hafa alltaf verið minni en mönnum er títt að ætla. Nákvæmar greiningar á liðnum atburðum leiða í ljós að viðtekin söguskoðun er oft byggð á miklum einföldunum. Samhengið á milli þess sem ráðandi menn vildu og þess sem varð er oftast flóknara og minna en viðtekin saga gefur til kynna.Leikritið Glöggir og hreinskilnir stjórnmálamenn í öllum álfum heimsins kvarta undan þessu máttleysi sín á milli, ekki síst við útlenda kollega. En einn er sá hópur sem stjórnmálamenn ræða þó ekki við um þessi vaxandi vandræði. Það eru kjósendur. Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að gagnvart kjósendum verða stjórnmálamenn að sýnast þess megnugir að breyta því sem þeir lofa að breyta. Leikrit stjórnmálanna byggist á því. Kjósendur kvarta jafnan hástöfum undan litlum efndum en krefjast um leið nýrra loforða. Uppákomur og refir Allir sem hafa farið með pólitísk völd þekkja hvernig uppákomur og óvænt rás atburða taka frá þeim frumkvæði og fylla dagskrá þeirra af vandræðum. Þetta hefur verið hlutskipti ríkisstjórna alla tíð. Því óvæntari og stærri sem uppákomurnar eru, því meira eru refir stjórnmálanna á heimavelli og hugsjónamenn á útivelli. Þetta er ein ástæða þess hve lítið samhengi er á milli fyrirheita og niðurstöðu í stjórnmálum. Nýleg þróun hefur enn frekar rofið þetta samhengi.Stærri veruleiki Þjóðfélög eru sífellt að verða flóknari og þau eru líka að verða miklu opnari. Fyrirheit um innlend efnahagsmál eru hvergi mikils virði án viðurkenningar á ytri veruleika. Hugmyndir um að sniðganga veruleikann eru á meðal þeirra hættulegustu í stjórnmálum en sérlega vinsælar á krepputímum eins og sjá má í nokkrum illa settum löndum í Evrópu. Hinn ytri veruleiki verður sífellt flóknari og viðkvæmari með samtengingu atvinnulífs jarðarinnar og ört vaxandi samþættingu allra hluta um víða veröld. Stjórnmálamenn allra landa glíma í reynd við það sama. Aðlögun að veruleika sem er utan þeirra eigin áhrifa.Máttur spurninga Til viðbótar hefur átt sér stað tilfærsla á valdi innan samfélaga sem er ekki síður söguleg en að mestu ótengdir flutningar valds frá vestri til austurs og norðri til suðurs í heiminum. Innan samfélaga nær hún allt frá heimilum fólks til mestu miðstöðva pólitísks, efnahagslegs og menningarlegs valds. Valdið færist frá körlum til kvenna, frá valdakerfum til upplýstra manna, frá stórfyrirtækjum til kunnáttusamra einstaklinga, frá hervaldi til mjúkra áhrifa, og frá þeim sem þykjast vita til hinna sem kunna að spyrja.Samhengið Öll stjórnmál eru staðbundin sagði gamall refur í Ameríku. Þetta þykir satt um allan heim og er það líka svo langt sem það nær. En það nær ekki langt. Pólitík er í kreppu vegna þess að veruleikinn er ekki lengur staðbundinn þótt pólitíkin sé það. Tilraunir til að láta sem hann sé staðbundinn kosta menn sýn á samhengi og skilning á sínum eigin aðstæðum. Menn taka óafvitandi á hverjum degi þátt í hnattrænum samræðum hvort sem þeir ræða samfélagsmál, menningu, atvinnulíf eða pólitík, þótt þeim sýnist oft staðbundinn angi hins almenna vera mjög sérstakur. Það er oftar persónugerð umræða frekar en eðli málsins sem hefur staðbundin sérkenni.Staðsetning valdsins Það er eitt lán hinna minni að uppsprettur valds er síður en áður að finna í eiginlegu afli og æ meira í þátttöku ríkja, hópa og einstaklinga í aragrúa af alls kyns netum sem tengja saman um allar jarðir þá aðila sem hvert mál varðar. Þessi net eru af ólíkasta tagi. Mörg eru formleg og fleiri þó óformleg. Sum tengja saman embættismenn, sum baráttufólk í pólitík, önnur athafnamenn eða þá nörda. Áhrif aflminni ríkja á eigin örlög fara sífellt meira eftir því hvernig þau tengja sig öðrum og nýta þau tengsl.Heimur að mýkjast Sú hugsun að menn passi best upp á eigin hag með því að sitja heima og loka sínum dyrum er því ekki aðeins sérlega óaðlaðandi á spennandi tímum heldur einnig líkleg til að gera menn veika í glímum við þann veruleika sem er að birtast í okkar heimi. Valdið í heiminum er að mýkjast og dreifast. Það byggir minna á styrk en áður og meira á aðdráttarafli hugmynda og siða. En menn þurfa að vera með til að passa upp á sinn eigin heim.Ábyrgðin Af öllum þessum ástæðum ættu menn ekki að láta kosningar, þetta svolítið deiga verkfæri lýðræðisins, snúast um einstök mál. Þau munu hvort sem er öll fá annan endi en lofað er. Heldur ættu menn að spyrja um almenn leiðarljós fólks og flokka í þeim þétta skógi af sífellt flóknari og óvæntari álitaefnum sem fram undan er. Það skiptir kjósendur meira máli að vita hvar þeir hafa menn, svona almennt talað, en að heyra um einstaka drauma þeirra. Nákvæm fyrirheit lenda fljótt í fjallháum bunkum svikinna kosningaloforða. Almenn afstaða ræður hins vegar hvernig menn vinna úr flóknum og óvæntum málum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Jón Ormur Halldórsson Kosningar 2013 Skoðun Mest lesið Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp? Einar Baldvin Árnason Skoðun Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna Samúel Torfi Pétursson Skoðun Íþróttir eru lykilinn Willum Þór Þórsson Skoðun Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra? Tómas Ellert Tómasson Skoðun Stærð er ekki mæld í sentimetrum Sigmar Guðmundsson Skoðun Áður en íslenskan leysist upp Gamithra Marga Skoðun Að eiga sæti við borðið Grímur Grímsson Skoðun Hverjum þjónar nýsköpunin? Halldóra Mogensen Skoðun Skoðun Skoðun Að taka ekki mark á sjálfum sér Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Betri borg Alexandra Briem skrifar Skoðun Að eiga sæti við borðið Grímur Grímsson skrifar Skoðun Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Íþróttir eru lykilinn Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Framtíð safna í ferðaþjónustu Guðrún D. Whitehead skrifar Skoðun Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp? Einar Baldvin Árnason skrifar Skoðun Að skapa framtíð úr fortíð Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Tími til umbóta í byggingareftirliti Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Stærð er ekki mæld í sentimetrum Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Áður en íslenskan leysist upp Gamithra Marga skrifar Skoðun Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna Samúel Torfi Pétursson skrifar Skoðun Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra? Tómas Ellert Tómasson skrifar Skoðun Hverjum þjónar nýsköpunin? Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur Eden Frost Kjartansbur skrifar Skoðun Þegar ríkið fer á sjóinn Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Íbúðarhúsnæði sem heimili fólks Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Íslenskumælandi hjúkrunarfræðingar Guðbjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisstarfsfólk eru ekki skotmörk Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir,Hildur Harðardóttir,Tryggvi Egilsson,Sunna Snædal,Yousef Tamimi,Örvar Gunnarsson skrifar Skoðun Leiðrétting veiðigjalda og varðstaðan um sérhagsmuni Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga Snædís Sunna Thorlacius,Ingibjörg Áskelsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnmálafólks um málefni Palestínu og Ísraels Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Í lífshættu eftir ofbeldi Jokka G Birnudóttir skrifar Skoðun Verið er að umbreyta borginni en hvað viljum við? Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir máli hvernig talað er um velferð dýra? Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar Skoðun Gróður, einmanaleiki og samfélagsleg samheldni Auður Kjartansdóttir skrifar Skoðun Ljúkum því sem hafið er - ný bálstofa í Gufunesi Ingvar Stefánsson skrifar Skoðun Raddir fanga Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Kann Jón Steindór ekki að reikna? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun
Skoðun Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson skrifar
Skoðun Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra? Tómas Ellert Tómasson skrifar
Skoðun Heilbrigðisstarfsfólk eru ekki skotmörk Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir,Hildur Harðardóttir,Tryggvi Egilsson,Sunna Snædal,Yousef Tamimi,Örvar Gunnarsson skrifar
Skoðun Hvers vegna skiptir máli hvernig talað er um velferð dýra? Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar
Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun