Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar 29. október 2026 07:30 Það var óneitanlega eftirminnilegt þegar Elon Musk sveiflaði keðjusög á íhaldsráðstefnunni CPAC snemma árs 2025. Keðjusögin var gjöf frá Javier Milei, forseta Argentínu, og báðir sveifluðu þeir þessu yfirgengilega verkfæri sem líkingu um hvernig þeir ætluðu sko að hakka báknið í spað og taka rækilega til í ríkisfjármálunum. Þetta sjónarspil virðist hafa haft djúp áhrif á borgarstjórn sem sveiflar nú sinni eigin keðjusög í borgarkerfinu án þess að hafa sérstakar áhyggjur af því hvað verður fyrir henni. Aðalmálið er að „vera snöggur og brjóta dót“ (e. move fast and break things) - hvort sem „dótið“ er verðlaus hús sem listamenn hafa breytt í hugguleg vinnu- og viðburðarými á eigin kostnað, „borgarlínukonseptið eins og það lítur út núna“, samskiptainnviðir (á tímum netárása og tröllabúa), mannréttindaskrifstofa sem sinnti m.a. aðgengismálum og inngildingu, ráðgjafar sem vinna með viðkvæmum hópum eins og þolendum ofbeldis, jafnvel fjölskyldu- og húsdýragarðurinn og bókasöfnin. Borgarfulltrúar meirihlutans láta nú ýmist eins og tillagan um bókasöfnin hafi verið óheppilega orðuð eða að lesskilningi borgarbúa sé ábótavant. Ætlunin sé þvert á móti að blása til stórsóknar fyrir bókasöfnin. Samt stendur ekki stafur í tillögunni um að bæta bókakost né aðstöðu, að lengja opnunartíma né fjölga viðburðum. Skrítið. Sigur einkaframtaksins Má ekki taka til í rekstri borgarinnar? Pottþétt. En reksturinn hefur samt gengið vel; allavega betur en hjá öllum hinum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu (nema Kópavogi) sama hvernig það er mælt: Reykvíkingar skulda minna per haus, skuldahlutfall er lægra og það er meira aukreitis til fjárfestingar eða niðurgreiðslu eftir að árið hefur verið gert upp. Þetta er þrátt fyrir það að Reykjavík hafi auknar skuldbindingar sem höfuðborg og sé auk þess eina sveitarfélagið sem sinnir félagslegri þjónustu af einhverju viti (næstum 80% félagslegs húsnæðis á Stór-Reykjavíkursvæðinu er í Reykjavík sjálfri). Þótt nýja borgarstjórnin segi allt í kalda kolum í rekstrinum er ekki þar með sagt að það sé satt. Það er hins vegar góð átylla til að sveifla keðjusögum. Þörfin fyrir þjónustu sem er skorin niður fer hins vegar ekki neitt. Lausnunum er bara útvistað, sem þýðir að einhverjum þriðja aðila, sem hefur hagnað að leiðarljósi, er borgað fyrir að veita tiltekna þjónustu í stað starfsfólks borgarinnar. Fastur rekstrarkostnaður borgarinnar lækkar þá í bókhaldinu en liðurinn „aðkeypt þjónusta“ hækkar, stundum nóg til að þriðji aðilinn græðir á tá og fingri og getur keypt sér mörg fjórhjól. Oft endar útvistunarævintýrið þó þegar þriðji aðilinn fattar að starfsemin er ekki mjög ábatasöm - enda gjarnan félagsleg í eðli sínu - og þá endar reksturinn aftur í fanginu á borginni með tilheyrandi kostnaði við að byrja upp á nýtt. Það er nú öll hagræðingin. En fyrir dogmatíska hægri menn er hún tákn um sigur einkaframtaksins. Menningarstríð í Ráðhúsinu Þetta síðasta skiptir máli því það verður æ skýrara að offors nýrrar borgarstjórnar er fyrst og fremst táknrænt. Það snýst ekki um rekstur (því þá væri keðjusögin á lofti í miklu fleiri sveitarfélögum) heldur næsta leik í menningarstríði „skynsamra hægri manna“ gegn „kommónistum“ og „libbum“. Hvergi sést þetta betur en í fáránlegri sýndarmennskunni við að „endurheimta“ fimmtán bílastæði (þótt alltaf sé nóg pláss í bílastæðahúsum miðborgarinnar). Það gæti vart verið andlausara og plebbalegra. En járnfrúin í Ráðhúsinu þekkir sitt fólk og maður heyrir vissulega veikan óm af fagnaðarlátum hjá þeim sem hafa látið ginna sig í þessa styrjöld. Fórnarlömbin í þessu leikriti eru hins vegar starfsfólk borgarinnar og venjulegir Reykvíkingar sem er sama um alla leikjafræði og vilja bara búa í skemmtilegri menningarborg þar sem er þægileg samfella og fyrirsjáanleiki - ekki ótti við hvar urrandi keðjusögin ber næst niður. Höfundur er Reykvíkingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Atli Bollason Mest lesið Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Íris Helga Gígju Baldursdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Skoðun Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun