Setti sér þetta markmið fyrir fimm árum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. september 2013 06:00 Hörður Axel Vilhjálmsson. Mynd/Stefán
Ísland mun eiga tvo leikmenn í spænsku úrvalsdeildinni í vetur eins og á síðasta tímabili. Þetta kom í ljós í gær þegar Hörður Axel Vilhjálmsson samdi við lið CB Valladolid. Jón Arnór Stefánsson spilar áfram með CAI Zaragoza í vetur en Hörður Axel kemur í staðinn fyrir Hauk Helga Pálsson, sem var lánaður til b-deildarliðsins Breogan á dögunum. „Ég setti mér markmið fyrir fimm árum um að fimm árum seinna yrði ég að spila í ACB-deildinni á Spáni. Hér stend ég eftir endalausa vinnu og endalausar hindranir með samning í höndunum. Þú getur gert nákvæmlega það sem þú vilt með þetta líf, fer allt eftir þínum eigin vilja og trú!“ skrifaði Hörður Axel Vilhjálmsson á fésbókarsíðu sína í gær þegar samningurinn var í höfn. Hörður Axel spilaði með Mitteldeutscher BC í þýsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili, þar sem hann var með 9,6 stig og 3,0 stoðsendingar að meðaltali á 23,4 mínútum í leik. Hörður Axel er 25 ára bakvörður sem er uppalinn í Fjölni en spilaði með Njarðvík og Keflavík áður en hann fór út. Fyrsti leikur CB Valladolid verður á útivelli á móti Real Madrid en fyrsti Íslendingaslagur tímabilsins verður ekki fyrr en á milli jóla og nýárs þegar Jón Arnór og félagar í CAI Zaragoza taka á móti Herði og félögum.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Fótbolti Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður Sport Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Fleiri fréttir Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Sjá meira