Fótbolti

Verður fjórða ævintýrið íslenskt?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Slóvenar fagnar eftir að þeir slógu Rússa út og komust á HM 2010.
Slóvenar fagnar eftir að þeir slógu Rússa út og komust á HM 2010. Mynd/AFP
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er lægst setta landsliðið á styrkleikalista FIFA af þeim átta sem taka þátt í umspilinu fyrir HM í Brasilíu 2014. Fréttablaðið kannaði gengi þjóða í sömu sporum og það íslenska í umspili HM og EM frá árinu 1997. Sagan geymir þrjú eftirminnileg ævintýri minnsta liðsins í umspili fyrir stórmót.

Íslensku strákarnir munu reyna að leika eftir afrek Slóveníu og Lettlands sem eru einu þjóðirnar sem hafa upplifað svona ævintýri. Fyrri leikurinn við Króata er á Laugardalsvelli eftir fjóra daga.

Slóvenar hafa afrekað það tvisvar sinnum að fara inn á stórmót eftir að hafa komið inn í umspilið sem lægst setta liðið á FIFA-listanum. Slóvenía náði því bæði fyrir EM 2000 og HM 2010.

Slóvenar voru í sömu stöðu og íslenska landsliðið fyrir fjórtán árum þegar þeir slógu út Úkraínu. Slóvenía var þá lægst setta þjóðin í umspili EM 2000 og hafði aldrei áður komist á stórmót. Úkraínska landsliðið hafði haft betur í baráttu við Ísland og Rússland í sínum riðli en datt óvænt út fyrir slóvenska liðinu. Slóvenar lentu undir í fyrri leiknum en tryggðu sér 2-1 heimasigur með tveimur mörkum í seinni hálfleik. Þeir komust síðan áfram á EM 2000 með því að jafna metin í 1-1, tólf mínútum fyrir lok seinni leiksins.

Slóvenar fóru líka í gegnum umspilið fyrir HM 2002 en þá voru þeir ekki lægsta umspilsliðið á styrkleikalistanum. Það voru þeir aftur á móti þegar þeir skildu Rússa eftir heima fyrir HM 2010. Rússar komust í 2-0 í fyrri leiknum á heimavelli sínum en Nejc Pecnik minnkaði muninn tveimur mínútum fyrir leikslok og Zlatko Dedic skoraði eina markið í seinni leiknum sem skilaði Slóvenum áfram á HM í Japan og Suður-Kóreu á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

Ævintýri Letta frá 2003 er síðan eitt það magnaðasta í sögu undankeppninnar. Lettar komu þá inn í umspilið í 69. sæti á styrkleikalista FIFA eða 61 sæti neðar en mótherjar þeirra frá Tyrklandi. Maris Verpakovskis tryggði Lettum 1-0 sigur í fyrri leiknum á heimavelli og þeir komust síðan áfram eftir 2-2 jafntefli í útleiknum. Tyrkir, bronsliðið frá HM ári fyrr, komust í 2-0 en Lettar jöfnuðu og tryggði sig inn á EM í Portúgal 2004.

Árangur „minnsta“ liðsins í umspili fyrir síðustu stórmót hefur aftur á móti ýmist verið í ökkla eða eyra og í hin fjögur skiptin hefur útkoman ekki verið falleg. Eistland (EM 2012, 1-5 á móti Írlandi), Slóvakía (HM 2006, 2-6 á móti Spáni), Austurríki (HM 2002, 0-6 á móti Tyrklandi) og Ungverjaland (HM 1998, 1-12 á móti Júgóslavíu) áttu þannig aldrei möguleika í sínum umspilsleikjum.

Það eru dæmi um öflugar knattspyrnuþjóðir sem hafa setið eftir á móti minni spámönnum og vonandi bætist íslenskt ævintýri við þau slóvensku og lettnesku.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir umspil í síðustu sjö skipti fyrir HM og EM eða frá því að þessi háttur var tekinn upp í undankeppni HM í Frakklandi 1998.

Lettar fagna eftir að hafa komist á EM 2004 eftir sigur á Tyrkjum.
Síðustu umspil fyrir stórmót og sæti þjóða á FIFA-listanum

Umspil fyrir HM 2014

Portúgal (14. sæti) - mætir Svíþjóð

Grikkland (15. sæti) - mætir Rúmeníu

Króatía (18. sæti) - mætir Íslandi

Úkraína (20. sæti) - mætir Frakklandi

Frakkland (21. sæti) - mætir Úkraínu

Svíþjóð (25. sæti) - mætir Portúgal

Rúmenía (29. sæti) - mætir Grikklandi

Ísland (46. sæti) - mætir Króatíu

Umspil fyrir EM 2012

Króatía (7. sæti) - Komst á EM

Portúgal (11. sæti) - Komst á EM

Írland (13. sæti) - Komst á EM

Tékkland (15. sæti) - Komst á EM

Tyrkland (18. sæti) - Úr leik

Bosnía (19. sæti) - Úr leik

Svartfjallaland (35. sæti) - Úr leik

Eistland (37. sæti) - Úr leik

Tyrkland-Króatía 0-3

Eistland-Írland 1-5

Tékkland-Svartfjallaland 3-0

Bosnía-Portúgal 2-6



Umspil fyrir HM 2010

Frakkland (9. sæti) - Komst á HM

Portúgal (10. sæti) - Komst á HM

Rússland (12. sæti) - Úr leik

Grikkland (16. sæti) - Komst á HM

Úkraína (22. sæti) - Úr leik

Írland (34. sæti) - Úr leik

Bosnía (42. sæti) - Úr leik

Slóvenía (49. sæti) - Komst á HM

Írland-Frakland 1-2

Portúgal-Bosnía 2-0

Grikkland-Úkraína 1-0

Rússland-Slóvenía 2-2 (Slóvenía, mörk á útivelli)



Umspil fyrir HM 2006

Tékkland (4. sæti) - Komst á EM

Spánn (8. sæti) - Komst á EM

Tyrkland (12. sæti) - Úr leik

Noregur (37. sæti) - Úr leik

Sviss (38. sæti) - Komst á EM

Slóvakía  (45. sæti) - Úr leik

Spánn-Slóvakía 6-2

Sviss-Tyrkland 4-4 (Sviss, mörk á útivelli)

Noregur-Tékkland 0-2



Umspil fyrir EM 2004

Spánn (3. sæti) - Komst á EM

Holland (5. sæti) - Komst á EM

Tyrkland (8. sæti) - Úr leik

Króatía  (20. sæti) - Komst á EM

Rússland  (28. sæti) - Komst á EM

Slóvenía (29. sæti) - Úr leik

Noregur (37. sæti) - Úr leik

Skotland (58. sæti) - Úr leik

Wales (59. sæti) - Úr leik

Lettland (69. sæti) - Komst á EM

Lettland-Tyrkland 3-2

Skotland-Holland 1-6

Króatía-Slóvenía 2-1

Rússland-Wales 1-0

Spánn-Noregur 5-1



Umspil fyrir HM 2002 - Úr leik

Þýskaland (12. sæti) - Komst á HM

Tékkland (14. sæti) - Úr leik

Rúmenía (15. sæti) - Úr leik

Belgía (26. sæti) - Komst á HM

Slóvenía (31. sæti) - Komst á HM

Úkraína (33. sæti) - Úr leik

Tyrkland (34. sæti) - Komst á HM

Austurríki (50. sæti) - Úr leik

Belgia-Tékkland 2-0

Úkraína-Þýskaland 2-5

Austurríki-Tyrkland 0-6

Slóvenía-Rúmenía 3-2



Umspil fyrir EM 2000

England (12. sæti) - Komst á EM

Danmörk (17. sæti) - Komst á EM

Skotland (20. sæti) - Úr leik

Úkraína (24. sæti) - Úr leik

Ísrael (27. sæti) - Úr leik

Írland (35. sæti) - Úr leik

Tyrkland (37. sæti) - Komst á EM

Slóvenía (53. sæti) - Komst á EM

Skotland-England 1-2

Ísrael-Danmörk 0-8

Slóvenía-Úkraína 3-2

Írland-Tyrkland 1-1ú



Umspil fyrir HM 1998

Ítalía (12. sæti) - Komst á HM

Rússland (16. sæti) - Úr leik

Króatía (33. sæti) - Komst á HM

Júgóslavía (37. sæti) - Komst á HM

Írland (42. sæti) - Úr leik

Belgía (48. sæti) - Komst á HM

Úkraína (52. sæti) - Úr leik

Ungverjaland (71. sæti) - Úr leik

Ítalía-Rússland 2-1

Króatía-Úkraína 3-1

Belgía-Írland 3-2

Júgóslavía-Ungverjaland 12-1




Fleiri fréttir

Sjá meira


×