Jaleesa Butler á heimleið - Anna Martin til Vals Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. desember 2013 06:00 Anna Martin spilaði með DePaul-háskólanuim undanfarin fjögur ár. Mynd/Nordicphotos/Getty
jaleesa Butler hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Val en Ágúst Björgvinsson, þjálfari kvennaliðs Vals, hefur ákveðið að skipta um bandaríska leikmann Hlíðarendaliðsins fyrir seinni hluta Dominos-deildar kvenna í körfubolta. Jaleesa Butler var á sínu þriðja tímabili hjá Ágústi og á sínu fjórða tímabili á Íslandi en hún skilaði ekki sömu tölum og á hinum þremur tímabilum sínum í deildinni. Jaleesa Butler var með 16,7 stig, 11,9 fráköst og 4,6 stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur en Valsliðið vann aðeins 6 af 14 leikjum sínum fyrir mót eftir að hafa verið spáð Íslandsmeistaratitlinum fyrir mót. Butler átti frábæra innkomu í Valsliðið á miðju síðasta tímabili en þá var hún með 20,4 stig og 15,2 fráköst að meðaltali í leik. Ágúst er búinn að finna nýjan bandarískan leikmann til þess að fylla skarð Butler en sú spilar ekki sömu stöðu. Butler spilar vanalega nálægt körfunni en nú mun Valsliðið tefla fram bandarískum bakverði. Anna Martin mun leysa Butler af en Martin útskrifaðist úr DePaul-háskólanum síðasta vor. Martin var með 13,8 stig og 2,8 stoðsendingar að meðaltali í 127 leikjum með skólanum. Martin er sjötti stigahæsti leikmaður DePaul-háskólans frá upphafi en hún er enn fremur í 5. sæti yfir flestar þriggja stiga körfur og í 6. sæti yfir flestar stoðsendingar. Anna Martin skoraði tíu stig eða meira í 89 af 127 leikjum sínum með skólanum en hún byrjaði inn á í 116 leikjum. Anna Martin mun væntanlega spila sinn fyrsta leik með Val þegar liðið heimsækir KR hinn 5. janúar næstkomandi.Mynd/Nordicphotos/Getty
Dominos-deild kvenna Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Íslenski boltinn McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Enski boltinn Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Fleiri fréttir LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Sjá meira