Sport

105 þúsund mættu á íshokkíleik og settu heimsmet

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Áhorfendurnir létu ekki snjó og kulda eyðileggja stemmninguna.
Áhorfendurnir létu ekki snjó og kulda eyðileggja stemmninguna. Mynd/NordicPhotos/Getty
Það var mikil dramatík í sérstökum íshokkíleik á nýársdag þegar Toronto Maple Leafs unnu 3-2 sigur á Detroit Red Wings í NHL-deildinni í leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í vítakeppni.

Þetta var sögulegur leikur og ekki bara fyrir að þarna voru tvö af stofnliðum NHL-deildarinnar að mætast á fyrsta degi ársins heldur var þarna sett nýtt áhorfendamet á íshokkíleik.

Toronto Maple Leafs komst tvisvar yfir í venjulegum leiktíma en Detroit Red Wings jafnaði í bæði skiptin. Ekkert var skorað í framlengingunni en liðsmenn Detroit klikkuðu tvisvar í vítakeppninni og því var sigurinn Toronto Maple Leafs.

Leikurinn bar nafnið "2014 NHL Winter Classic" og fór fram utanhúss eða á Michigan leikvanginum í Ann Arbor. Alls komu 105.491 áhorfendur á leikinn og létu kulda (mínus ellefu gráður) og snjókomu trufla sig.

Gamla heimsmetið var frá desember 2010 þegar Michigan Wolverines unnu Michigan State Spartans Í háskólaíshokkíinu en um þúsund fleiri mættu á leikinn í gær. Gamla metið á NHL-leik var hinsvegar 71.217 manns á leik árið 2008.

Snjókoman gerði reyndar leikmönnum erfitt fyrir á ísnum enda ekki að glíma við venjulegar aðstæður en er þó einn af sex leikjum tímabilsins sem fara fram utandyra. Leikirnir eru hluti af Stadium Series en það verður einnig spilað á Dodger Stadium (Los Angeles), Yankee Stadium (New York, 2 leikir), Soldier Field (Chicago) og BC Place (Vancouver).

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar skemmtilegar myndir frá þessum sögulega leik í Michigan.

Mynd/NordicPhotos/Getty
Mynd/NordicPhotos/Getty
Mynd/NordicPhotos/Getty
Mynd/NordicPhotos/Getty
Mynd/NordicPhotos/Getty
Mynd/NordicPhotos/Getty
Mynd/NordicPhotos/Getty
Mynd/NordicPhotos/Getty
Mynd/NordicPhotos/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×