Körfubolti

Smith tryggði Pistons sigur á síðustu stundu | Nowitzki og Durant fóru á kostum

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Smith tryggði sigurinn.
Smith tryggði sigurinn. mynd:nordic photos/ap
Níu leikir voru í NBA körfuboltanum í Bandaríkjunum í nótt. Dirk Nowitzki skoraði 40 stig fyrir Dallas Mavericks og Kevin Durant 33 stig fyrir Oklahoma City Thunder en það var Josh Smith sem stal senunni þegar hann tryggði Detroit Pistons sigur á Phoenix Suns rúmri sekúndu fyrir leikslok.

Smith skoraði 25 stig, tók 11 fráköst og gaf 5 stoðsendingar en karfa hans af spjaldinu þegar 1,2 sekúndur voru eftir tryggði Pistons tveggja stiga sigur 110-108. Karfan góða ber hæst í tilþrifum næturinnar sem sjá má í meðfylgjandi myndbandi.

Greg Monroe skoraði 20 stig fyrir Pistons og Will Bynum 16. Channing Frye skoraði 21 stig fyrir Suns og P.J. Tucker og Marcus Morris 17 stig hvor.

Toronto Raptors batt enda á fimm leikja sigurgöngu Brooklyn Nets þegar Raptors lagði þreytta leikmenn Nets 96-80 í Kanada. Nets lagði meistara Miami Heat í tvíframlengdum leik í gær og skorti úthald í leiknum í nótt en Raptors gerðu út um leikinn í fjórða leikhluta.

DeMar DeRozan fór fyrir Raptors með 26 stig, 7 fráköst og 5 stoðsendingar. Terrence Ross og Patrick Patterson skoruðu 14 stig en Patterson tók einnig 12 fráköst. Paul Pierce komst næst því að vera með lífsmarki hjá Nets en hann skoraði 15 stig.

Kevin Durant fór að vanda fyrir Oklahoma City Thunder sem batt enda á tveggja leikja taphrinu. Thunder lagði Milwaukee Bucks 101-85 á heimavelli sínu þar sem Durant skoraði 33 stig, tók 10 fráköst og gaf 7 stoðsendingar.

Serge Ibaka skoraði 17 stig fyrir Thunder auk þess að taka 17 fráköst. Jeremy Lamb skoraði 17 stig af bekknum. Varamennirnir Luke Ridnour og O.J. Mayo skoruðu mest fyrir Bucks, 16 stig hvor.

Dirk Nowitzki fór á kostum þegar Dallas Mavericks marði New Orleans Pelicans 110-107 í Dallas. Nowitzki skoraði 40 stig, Monta Ellis 26 og Jose Calderon 17.

Anthony Davis skoraði 28 stig fyrir Pelicans og Eric Gordon 20.

Úrslit næturinnar:

Toronto Raptors – Brooklyn Nets 96-80

Washington Wizards – Houston Rockets 107-114

Detroit Pistons – Phoenix Suns 110-108

Philadelphia 76ers – New York Knicks 92-102

Chicago Bulls – Charlotte Bobcats 103-97

Oklahoma City Thunder – Milwaukee Bucks 101-85

Dallas Mavericks – New Orleans Pelicans 110-107

Denver Nuggets – Orlando Magic 120-94

Portland Trail Blazers – Boston Celtics 112-104



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×