Vafningsmálið fyrir Hæstarétti í dag Jóhannes Stefánsson skrifar 3. febrúar 2014 14:17 Sannað þótti að Lárus og Guðmundur hefðu misnotað aðstöðu sína og veitt Milestone lán með ólögmætum hætti.
Aðalmeðferð í máli Lárusar Welding og Guðmundar Hjaltasonar fór fram í Hæstarétti í dag. Lárus er fyrrverandi forstjóri Glitnis og Guðmundur er fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis. Báðir krefjast þeir sýknu fyrir Hæstarétti. Lárus og Guðmundur voru þann 28. desember 2012 sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot á 249. gr. almennra hegningalaga fyrir umboðssvik. Þeir voru dæmdir í níu mánaða fangelsi, en þar af voru sex mánuðir skilorðsbundnir til tveggja ára. Ákæruvaldið hafði farið fram á sex ára fangelsi, en héraðsdómur mat sakir þeirra ekki miklar vegna þess hversu skamman tíma hið ólögmæta ástand varði og hversu lítil fjártjónshætta skapaðist af háttsemi Lárusar og Guðmundar. Hæsta leyfilega refsing, ef sakir eru ekki metnar mjög miklar, eru tvö ár. Ef sakirnar eru taldar sérstaklega alvarlegar má refsingin mest vera sex ára fangelsi. Sköpuðu Glitni fjártjónshættu Forsaga málsins er sú að Lárus og Guðmundur, sem sátu báðir í áhættunefnd Glitnis, misnotuðu aðstöðu sína og stefndu bankanum í stórfellda hættu með því að lána Milestone jafnvirði tíu milljarða króna í febrúar 2008, rúmu hálfu ári áður en bankinn féll. Helmingur lánsins rann til félagsins Vafnings, með handveði í hlutabréfum þess. Félagið átti ekkert nema hálfa milljón í hlutafé svo segja má að lánið hafi í raun verið án trygginga. Þá fékk félagið Svartháfur hinn helming tíu milljarðanna frá bankanum skömmu síðar. Tilgangurinn var að beita fléttu til að greiða niður lán Milestones til bankans í gegnum Vafning. Í niðurstöðu héraðsdóms segir: „...sannað að ákærðu hafi 8. febrúar 2008 samþykkt að veita Milestone ehf. peningamarkaðslán með ólögmætum hætti að fjárhæð 102.162.470,12 evrur og þannig bakað Glitni banka hf. fjártjónshættu. Með lánveitingunni fóru ákærði, Lárus Welding, sem bankastjóri, og ákærði, Guðmundur Hjaltason, sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis banka hf., út fyrir heimildir sínar í störfum sínum og skuldbundu með þeim Glitni banka hf. með ólögmætum hætti. Misnotuðu ákærðu með þessu aðstöðu sína..." Ráðgert er að Hæstiréttur kveði upp dóm í málinu þann 13. eða 20. febrúar næstkomandi.
Vafningsmálið Dómsmál Tengdar fréttir Glitnismenn geta tekið refsinguna út með samfélagsþjónustu Þeir Lárus Welding og Guðmundur Hjaltason munu ekki þurfa að sitja af sér refsingu vegna Vafningsdómsins í fangelsi. Í staðinn munu þeir geta tekið út refsinguna með samfélagsþjónustu. Þeir voru í dag dæmdir í níu mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna. Þrír mánuðir eru því óskilorðsbundir hjá hvorum þeirra. 28. desember 2012 14:49 Vill fimm og hálfs árs fangelsi yfir Lárusi Welding Saksóknarinn í svonefndu Vafningsmáli fer fram á fimm og hálfs ár fangelsisdóm yfir Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, og fimm ára dóm yfir Guðmundi Hjaltasyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs bankans. Saksóknarinn, Hólmsteinn Gauti Sigurðsson, lauk rétt í þessu rúmlega tveggja klukkustunda langri málflutningsræðu sinni. 10. desember 2012 11:35 Verjandi segir Lárusi hafa gengið gott eitt til Ekkert vitni í Vafningsmálinu hefur borið um að Lárus Welding og Guðmundur Hjaltason hafi haft nokkuð með það að gera að lána Milestone tíu milljarða föstudaginn 8. febrúar 2008. Því er útilokað að telja sannað að þeir hafi gerst sekir um umboðssvik með þeirri lánveitingu. Þetta sagði Óttar Pálsson, verjandi Lárusar, í tveggja og hálfrar klukkustundar ræðu sinni í Héraðsdómi Reykjavíkur sem hann lauk fyrir stundu. 10. desember 2012 15:13 Dómurinn kveðinn upp í Vafningsmálinu á morgun Dómur verður kveðinn upp í Vafningsmálinu svokallað á morgun, 28. desember. Ákærðir í málinu eru Guðmundur Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis, og Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis. Þeir eru sakaðir um umboðssvik, í tengslum við 10 milljarða peningamarkaðslán til Milestone hinn 8. febrúar 2008. 27. desember 2012 16:12 Löng málflutningstörn hafin Málflutningur er hafinn í Héraðsdómi Reykjavíkur á lokadegi réttarhaldanna í Vafningsmáli sérstaks saksóknara. Það er saksóknarinn Hólmsteinn Gauti Sigurðsson sem flytur mál sitt í upphafi. Áætlað er að það gæti tekið um tvær klukkustundir. 10. desember 2012 09:23 Lárus Welding og Guðmundur Hjaltason sakfelldir Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Guðmundur Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis, voru báðir dæmdir í níu mánaða fangelsi fyrir stórfelld umboðssvik í Heraðsdómi Reykjavíkur í dag. 28. desember 2012 14:06 Hrunið gerði ekki öll lán ólögleg "Hrun íslensks efnahagslífs breytti ekki öllum lánveitingum í ólögmæta gerninga,“ sagði Þórður Bogason, verjandi Guðmundar Hjaltasonar, í málflutningsræðu sinni í Vafningsmálinu sem hann lauk við í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu. Þórður talaði í tæpar tvær klukkustundir. 10. desember 2012 17:07 Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira
Glitnismenn geta tekið refsinguna út með samfélagsþjónustu Þeir Lárus Welding og Guðmundur Hjaltason munu ekki þurfa að sitja af sér refsingu vegna Vafningsdómsins í fangelsi. Í staðinn munu þeir geta tekið út refsinguna með samfélagsþjónustu. Þeir voru í dag dæmdir í níu mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna. Þrír mánuðir eru því óskilorðsbundir hjá hvorum þeirra. 28. desember 2012 14:49
Vill fimm og hálfs árs fangelsi yfir Lárusi Welding Saksóknarinn í svonefndu Vafningsmáli fer fram á fimm og hálfs ár fangelsisdóm yfir Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, og fimm ára dóm yfir Guðmundi Hjaltasyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs bankans. Saksóknarinn, Hólmsteinn Gauti Sigurðsson, lauk rétt í þessu rúmlega tveggja klukkustunda langri málflutningsræðu sinni. 10. desember 2012 11:35
Verjandi segir Lárusi hafa gengið gott eitt til Ekkert vitni í Vafningsmálinu hefur borið um að Lárus Welding og Guðmundur Hjaltason hafi haft nokkuð með það að gera að lána Milestone tíu milljarða föstudaginn 8. febrúar 2008. Því er útilokað að telja sannað að þeir hafi gerst sekir um umboðssvik með þeirri lánveitingu. Þetta sagði Óttar Pálsson, verjandi Lárusar, í tveggja og hálfrar klukkustundar ræðu sinni í Héraðsdómi Reykjavíkur sem hann lauk fyrir stundu. 10. desember 2012 15:13
Dómurinn kveðinn upp í Vafningsmálinu á morgun Dómur verður kveðinn upp í Vafningsmálinu svokallað á morgun, 28. desember. Ákærðir í málinu eru Guðmundur Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis, og Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis. Þeir eru sakaðir um umboðssvik, í tengslum við 10 milljarða peningamarkaðslán til Milestone hinn 8. febrúar 2008. 27. desember 2012 16:12
Löng málflutningstörn hafin Málflutningur er hafinn í Héraðsdómi Reykjavíkur á lokadegi réttarhaldanna í Vafningsmáli sérstaks saksóknara. Það er saksóknarinn Hólmsteinn Gauti Sigurðsson sem flytur mál sitt í upphafi. Áætlað er að það gæti tekið um tvær klukkustundir. 10. desember 2012 09:23
Lárus Welding og Guðmundur Hjaltason sakfelldir Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Guðmundur Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis, voru báðir dæmdir í níu mánaða fangelsi fyrir stórfelld umboðssvik í Heraðsdómi Reykjavíkur í dag. 28. desember 2012 14:06
Hrunið gerði ekki öll lán ólögleg "Hrun íslensks efnahagslífs breytti ekki öllum lánveitingum í ólögmæta gerninga,“ sagði Þórður Bogason, verjandi Guðmundar Hjaltasonar, í málflutningsræðu sinni í Vafningsmálinu sem hann lauk við í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu. Þórður talaði í tæpar tvær klukkustundir. 10. desember 2012 17:07