Körfubolti

Durant yfir 40 stigin í sjöunda sinn á tímabilinu

Kevin Durant heldur áfram að fara á kostum í NBA-deildinni í körfubolta en hann skoraði yfir 40 stig í sjöunda sinn á tímabilinu þegar Oklahoma City lagði New York í nótt, 112:100

Durant var grátlega nálægt þrennu en hann skoraði 41 stig, tók 10 fráköst og af 9 stoðsendingar. Hann hitti úr 12 af 22 skotum sínum úr teignum og fjórum þriggja stiga skotum af sjö.

Þessi magnaði leikmaður er nú búinn að skora yfir 30 stig í 31 leik af 53 á tímabilinu. Ennfremur var þetta í 15. skiptið á ferlinum sem hann skorar yfir 40 stig í leik.

Carmelo Anthony var eðlilega í algjöru aukahlutverki í leiknum en hann skoraði 15 stig fyrir New York Knicks, tók sjö fráköst og gaf fimm stoðsendingar.

Topplið austurdeildarinnar, Indiana Pacers, tapaði óvænt í nótt, 93:92. Indiana var ellefu stigum yfir fyrir lokafjórðunginn en Orlando-liðið var sterkara á lokasprettinum og tryggði sér sigurinn.

Nikola Vucevic var stigahæstur Orlando-manna með 19 stig auk þess sem hann tók 13 stoðsendingar en Paul George skoraði 27 stig fyrir Indiana.

Úrslit næturinnar:

Oklahoma City Thunder - New York Knicks 112-110

Los Angeles Lakers - Chicago Bulls 86-92

Boston Celtics - Dallas Mavericks 91-102

Brooklyn Nets - New Orleans Pelicans 93-81

Cleveland Cavaliers - Memphis Grizzlies 91-83

Orlando Magic - Indiana Pacers 93-92

Washington Wizards - Sacramento Kings 93-84

Los Angeles Clippers - Philadelphia 76ers 123-78

Efstu átta í austrinu:

1. Indiana 39-11

2. Miami 35-14

3. Toronto 26-24

4. Atlanta 25-24

5. Washington 25-25

6. Chicago 25-25

7. Brooklym 23-26

8. Charlotte 22-29

Efstu átta í vestrinu:

Oklahoma City 41-12

San Antonio 37-14

Portland 36-15

LA Clippers 36-18

Houston 34-17

Phoenix 30-20

Dallas 31-21

Golden State 30-21

Heildarstöðuna má finna hér.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×