Fótbolti

Stórt tap hjá stelpunum í fyrsta leik á Algarve-mótinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það gekk ekki nógu vel hjá Söru Björk Gunnarsdóttur og stelpunum í Portúgal í dag.
Það gekk ekki nógu vel hjá Söru Björk Gunnarsdóttur og stelpunum í Portúgal í dag. Mynd/KSÍ/Hilmar Þór Guðmundsson
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tapaði 0-5 á móti Evrópumeisturum Þýskalands í fyrsta leik sínum í Algarve-mótinu í dag.

Þýska liðið hafði mikla yfirburði í leiknum í dag og var komið í 3-0 fyrir hálfleik. Dzsenifer Marozsán skoraði tvö fyrstu mörkin og þær Celia Sasic, Lena Goessling og Alexandra Popp bættu allar við mörkum.

Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska liðsins, henti nokkrum leikmönnum út í djúpu laugina í þessum leik og liðið er líka einnig án lykilmanna. Liðið átti fá svör á móti frábæru þýsku liði.

Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir léku báðar sinn fyrsta A-landsleik í dag og þá var Anna Björk Kristjánsdóttir líka í byrjunarliðinu en hún hafði aðeins leikið einn landsleik fyrir leikinn í dag.

Íslenska liðið mætir Noregi í næsta leik sínum sem fer fram á föstudaginn. Lokaleikur liðsins í riðlinum er síðan á móti Kína á mánudaginn kemur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×