Körfubolti

LeBron skoraði 61 stig | Myndband

LeBron með grímuna góðu í nótt.
LeBron með grímuna góðu í nótt. vísir/getty
Andlitsgríman var ekki mikið að þvælast fyrir LeBron James í nótt er hann setti persónulegt met með því að skora 61 stig í öruggum sigri Mimai Heat á Charlotte Bobcats.

James sló einnig félagsmet hjá Miami með þessari frammistöðu en metið var 56 stig. Það átti Glen Rice frá árinu 1995.

Þessi besti leikmaður deildarinnar setti niður 22 af 33 skotum sínum í leiknum. Þar af voru 8 þriggja stiga körfur í 10 tilraunum. Þetta var í tíunda sinn á ferlinum sem James skorar yfir 50 stig í leik.

Úrslit:

Washington-Memphis  104-110

Brooklyn-Chicago  96-80

Detroit-NY Knicks  96-85

Miami-Charlotte  124-107

Milwaukee-Utah  114-88

Denver-Minnesota  128-132

Portland-LA Lakers  106-107

Sacramento-New Orleans  96-89



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×