Framhaldsskólanemar halda partí vegna verkfalls Baldvin Þormóðsson skrifar 11. mars 2014 21:04 Framhaldsskólanemar eru margir hverjir með kvíðahnút í maganum vegna verkfallsins. „
Við viljum bara dreifa huga samnemenda okkar vegna verkfallsins,“ segir Hilmar Jökull Stefánsson, framhaldsskólanemi. „En við erum ekki að fagna verkfallinu, alls ekki.“ Hilmar ákvað ásamt vini sínum, Hauki Má Tómassyni, að skipuleggja viðburð sem haldinn verður næstkomandi föstudag þar sem framhaldsskólanemum er boðið í partí í Turninn í Kópavogi. „Við ákváðum að hafa þetta á föstudaginn, þar sem það er síðasti skóladagurinn og svona,“ segir Haukur Már. „En við viljum bara skemmta framhaldsskólanemum í kjölfar umræðunnar.“ Stofnuðu þeir vinirnir félagið Fjörboltinn fyrir viðburðinn, og stefna þeir að því að halda fleiri slík partí í framtíðinni. „Við ákváðum að stofna þetta til þess að halda einhvern viðburð og okkur datt bara í hug nafnið Fjörboltinn þar sem það vísar til skemmtana,“ segir Haukur Már. „Skólameistarinn okkar í MK gekk á milli stofa í dag að ræða við nemendur hvað gæti hugsanlega gerst og svona. Við ákváðum að það þyrfti að gera eitthvað jákvætt til að dreifa athyglinni,“ segir Hilmar.„En eins og við segjum, þá erum við ekki að fagna verkfallinu, heldur viljum við skemmta framhaldsskólanemum,“ segir Haukur Már. Á Facebook viðburði partísins eru um það bil 500 framhaldsskólanemar búnir að staðfesta komu sína og ennþá fjórir dagar í veisluhöldin.
Kennaraverkfall Mest lesið Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Facebook lá niðri Erlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Fleiri fréttir Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Sjá meira