Innlent

Brotist inn í tvö fyrir­tæki

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Innbrotin eru til rannsóknar hjá lögreglu. Myndin er úr safni.
Innbrotin eru til rannsóknar hjá lögreglu. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar um innbrot á svipuðu svæði miðsvæðis í Reykjavík í dag. Málin eru bæði í rannsókn.

Er þetta meðal þeirra 69 mála skráðu í kerfi lögreglu í dag. Innbrotin áttu sér stað í umdæmi lögreglustöðvar eitt sem sinnir útköllum í Miðbæ, Vesturbæ, Austurbæ og á Seltjarnarnesi. Þeim er ekki lýst frekar í yfirliti lögreglu um verkefni dagsins.

Þá barst lögreglu tilkynning um „víðáttuölvaðan aðila“ sem svaf ölvunarsvefni utandyra. Farið var með viðkomandi á lögreglustöð og komst þá í ljós að hann ætti heima aðeins tveimur húsum frá því þar sem hann fannst. Var hann keyrður heim til sín þar sem fjölskyldumeðlimur tók á móti honum.

Einn var handtekinn í verslun eftir að lögreglu barst tilkynning um ofbeldisfulla hegðun. Sá var laus eftir samtal á lögreglustöð.

Lögregla hafði afskipti af fimm ökumönnum grunuðum um akstur undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra reyndist sviptur ökuréttindum og var með hníf í fórum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×