Red Bull spáir Mercedes velgengni

Þetta er eitthvað sem margir gárungar hafa talið líklegt eftir góðan æfingavetur hjá Mercedes. Christian Horner er fyrsti liðsstjórinn hjá toppliði til að spá slíku forskoti. Hann gefur þar með undir fótinn vangaveltum um að Red Bull hafi byrjaði of seint að hanna 2014 bílinn.
Undir lok síðasta tímabils voru öll önnur lið farin að huga að 2014 bílnum. Red Bull hélt ótrautt áfram að þróa 2013 bíl sinn sem leiddi til algjörrar drottnunnar undir lok tímabils.
Horner viðurkennir að Red Bull hafi verið of ákafir við hönnun bílsins. Hann segir þó að búið sé að leysa kæliþörf vélarinnar. RB10 bíllinn ofhitnaði stöðugt á æfingum í vetur. Það bendir til þess að nú sé vandinn hjá Renault, sem skaffar vélina.
Forvitnilegt verður að fylgjast með framgangi mála í Ástralíu um næstu helgi. Útsending Stöðvar 2 Sports frá tímatökunum hefst klukkan 5:50 á laugardagsmorgun. Keppnin sjálf er svo á dagskrá klukkan 5:30 á sunnudagsmorgun.
Tengdar fréttir

Perez fljótastur | Red Bull enn í vanda
Mexíkóski ökuþórinn Sergio Perez, sem ekur fyrir Force India liðið, átti besta brautartíma dagsins í Bahrain. Síðasta æfingavika fyrir tímabilið hófst þar í morgun.

Rosberg fljótastur - Raikkonon klessti bílinn
Lokadagur annarar æfingaviku í Formúlu 1 var í dag.

Ecclestone trúir á Mercedes-vélina
Hinn 83 ára gamli Bernie Ecclestone spáir því að Mercedes vinni heimsmeistaratitil bílasmiða á komandi tímabili. Þá telur hann líklegt að annar ökumanna liðsins verði heimsmeistari ökuþóra og veðjar frekar á Nico Rosberg.

Vandinn var hjá Red Bull
Adrian Newey aðalhönnuður Red Bull liðsins í formúlu eitt viðurkennir að hann hafi vanmetið kæliþörf nýju vélarinnar. Uppröðun vélarinnar hefur einnig áhrif og segir Newey að hann hafi pakkað hlutum Renault vélarinnar of þétt saman.

Vettel komst ekki nema hálfan hring – Massa fljótastur
Fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel ók aðeins hálfan hring á æfingu dagsins í dag en nú styttist óðum í að keppnistímabilið í formúlu eitt hefjist.

Bíllinn verður að vera skotheldur
Nico Rosberg annar ökumanna Mercedes liðsins segir að nýr bíll liðsins W05 verði að vera 100% áreiðanlegur. Lykillinn að árangri á tímabilinu verður líklega áreiðanleiki. Fyrstu keppnirnar verða þar mikilvægastar. Hægt og rólega munu liðin svo læra hversu mikið vélarnar þola.

Hamilton var fljótastur á lokadeginum
Æfingum fyrir komandi tímabil í Formúlu eitt lauk í Bahrain í dag. Bretinn Lewis Hamilton á Mercedes endaði með hraðasta tíma dagsins 1:33.278. Hann ók 69 hringi en tapaði miklum tíma í morgun vegna vandræða með gírkassa.

Mercedes-menn halda sér á jörðinni
Mercedes-liðið gerir lítið úr þeim hrópum manna þessa dagana að það sé líklegast til að hampa heimsmeistaratitli bílasmiða í Formúlu 1 á komandi tímabili.

Red Bull enn í vanda
Þjóðverjinn Nico Hulkenberg hjá Force India var fljótastur á fyrsta æfingadegi í Bahrain í dag.

Perez aftur fljótastur | Besti dagur Red Bull
Aftur átti Sergio Perez á Force India besta tíma dagsins í Bahrain. Tími hans var 1:35.570, örlítið hægar en í gær. Þá var tími hans 1:35.290. Annar í dag varð Fernando Alonso á Ferrari, tími hans var 1:35.634.