Fótbolti

Fanndís: Þetta var algjörlega mitt mark

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fanndís Friðriksdóttir.
Fanndís Friðriksdóttir. Mynd/KSÍ/Hilmar Þór Guðmundsson
Fanndís Friðriksdóttir tryggði íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta sæti í bronsleiknum á Algarve-mótinu með því að skora sigurmarkið beint úr hornspyrnu í uppbótartíma leiksins.

„Þetta er smá loðið og ég á eftir að sjá myndband með þessu marki. Ég eigna mér samt þetta mark, það snerti enginn boltann í mínu liði og hann var alltaf á leiðinni á markið. Þetta er algjörlega mitt mark," sagði Fanndís kát í leikslok.

Hún hafði komið inná sem varamaður í leiknum og var þarna að taka sína fyrstu hornspyrnu með þetta góðum árangri.

„Þetta var fyrsta hornspyrnan sem ég tók í leiknum. Við áttum að setja boltann inn á markmanninn og þetta var "inswing" horn," lýsir Fanndís.

„Við vorum búnar að setja pressu á þær undir lokin og vorum óheppnar að skora ekki úr góðu færi þarna rétt á undan. Það var mikill léttir að ná inn þessu sigurmarki og við áttum þetta líka skilið," sagði Fanndís.

Íslenska liðið tapaði 0-5 fyrir Þýskalandi í fyrsta leik en hefur síðan unnið góða sigra á Noregi og Kína.

„Við erum búnar að halda okkar skipulagi. Þýskalandsleikurinn var náttúrulega erfiður en við höfum ekki gefið færi á okkur á móti Noregi og Kína. Það er lítið hægt að kvarta yfir þessu hjá okkur enda búnar að standa okkur mjög vel," sagði Fanndís.

„Þýska liðið er í öðrum klassa en hin liðin í riðlinum. Noregur og Kína voru hinsvegar nær okkur í styrkleika. Þetta voru báðir jafnir og skemmtilegir leikir en við gáfum samt lítil færi á okkur," sagði Fanndís.

Framundan er leikur við Svíþjóð um þriðja sætið á mótinu.

„Við eigum harma að hefna því við töpuðum illa fyrir þeim hérna á þessu móti í fyrra sem og á EM. Við erum staðráðnar í að bæta fyrir þau töp," sagði Fanndís en það verður rætt meira við hetju íslenska liðsins í Fréttablaðinu á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×