Íslenski boltinn

Páll um samskipti KV og KSÍ: Stundum eins og að glíma við Sovét

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
KV fagna sæti í 1. deildinni síðasta haust.
KV fagna sæti í 1. deildinni síðasta haust. Vísir/Daníel
Páll Kristjánsson , formaður KV, er ekki í nokkrum vafa um að liðið hans fá þátttökuleyfi í 1. deild karla í sumar en hann ræddi stöðu mála hjá KV-mönnum í kvöldfréttum Stöðvar tvö.

KV hefur farið fram á undanþágu eða aðlögun vegna mannvirkjamála og yngri flokka starfs.

KV tryggði sér sæti í 1. deildinni á síðustu leiktíð og þá þegar vöknuðu upp spurningar um hvort félagið fengi leyfi til þess að leika í deildinni. Engir yngri flokkar eru þannig starfræktir hjá félaginu.

„Hvað varðar yngri flokka starfið þá erum við í því sem kalla má aðlögun. Við höfum farið í samstarf með KR hvað varða yngri flokka starf og það er liður í okkar aðlögun að uppfylla leyfisskilyrðin," sagði Páll Kristjánsson, formaður KV í viðtali við Hörð Magnússon í kvöldfréttum Stöðvar tvö í kvöld.

„Miðað við þau skilyrði sem sett eru og miðað við þær reglugerðir sem eru uppi þá höfðum við að öllu leyti komið til móts við kröfur KSÍ," sagði Páll.

Endanlegt þátttökuleyfi liggur fyrir hjá Knattspyrnusambandi Íslands á föstudaginn kemur. Forráðamenn KV hafa lagt gríðarlega vinnu í að uppfylla ströng skilyrði.

„Það hefur alltof mikil vinna hafi farið í eitthvað sem mér finnst persónulega algjörlega tilgangslaust. Þetta er stundum eins og að glíma við Sovét eða eitthvað svoleiðis. Þar að auki hafa einstakir stjórnarmenn KSÍ komið og lýst yfir stuðningi við okkur og sagt að þeim finnst algjörlega út úr korti hvernig þetta mál hefur verið tæklað af sambandinu," sagði Páll.

En hvað gerist ef KV fær ekki þátttökuleyfi í 1. deild karla í sumar?

„Ef svo ólíklega færi að málið yrði afgreitt með þeim hætti þá er félaginu sjálfhætt og ég held að það gildi það sama um ansi marga klúbba," sagði Páll.

KV vann sér sæti í 1. deild karla síðasta sumar með því að ná öðru sæti í 2. deildinni en liðið fór upp ásamt deildarmeisturum HK. Þau eiga að taka sæti KF og Völsungs sem féllu úr 1. deildinni síðasta haust.

Vísir/Daníel



Fleiri fréttir

Sjá meira


×