Körfubolti

Rodman spilaði með hárkollu og varalit | Myndband

Engum líkur þessi maður.
Engum líkur þessi maður. mynd/twitter
Það er löngu orðið ljóst að Dennis Rodman leiðist ekki athyglin og hann stal senunni enn eina ferðina um helgina.

Þá var hann að taka þátt í sýningarleik í Argentínu ásamt öðrum NBA-goðsögnum eins og Gary Payton, Latrell Sprewell og Vin Baker.

Rodman mætti til leiks með svakalega hárkollu og varalit. Hann spilaði síðan allan leikinn þannig.

Þessir strákar ætla víst að spila fleiri svona sýningarleiki á næstunni og verður áhugavert að sjá hvað Rodman býður upp á næst.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×