Elfar skaut Blikum áfram | FH vann Stjörnuna í Garðabænum Tómas Þór Þórðarson skrifar 16. apríl 2014 20:51 Elfar Árni Aðalsteinsson fagnar marki með Breiðabliki. Vísir/Valli
Þórsarar voru fyrsta liðið til að komast í undanúrslit A-deildar Lengjubikarsins í fótbolta í kvöld þegar þeir lögðu Keflvíkinga í vítaspyrnukeppni í Boganum á Akureyri. Keflavík byrjaði mun betur og skoraði tvö mörkin á fyrstu sex mínútum leiksins en þau gerðu Elías Már Ómarsson og Hörður Sveinsson. Gestirnir misstu mann af velli á 19. mínútu þegar HalldórKristinnHalldórsson fékk beint rautt spjald og ÞórðurBirgisson minnkaði muninn, 2-1, fyrir Þór á 37. mínútu. Svo virtist sem tíu Keflvíkingar ætluðu að halda út og komast í undanúrslitin en Ármann Pétur Ævarsson kom Þórsurum í framlengingu með marki úr vítaspyrnu á fyrstu mínútu í uppbótartíma, 2-1. Eftir markalausa framlengingu var gripið til vítaspyrnukeppni sem Þór vann, 4-3, og leikinn, 6-5. Í Garðabænum mættust Stjarnan og FH þar sem FH tryggði sér farseðilinn í undanúrslitin með 2-1 sigri. Markalaust var í hálfleik en Veigar Páll Gunnarsson kom Stjörnunni yfir á gervigrasinu í Garðabænum eftir tæpar þrjár mínútur í seinni hálfleik. FH-ingar tryggðu sér sigurinn með tveimur mörkum á þriggja mínútna kafla en Ingimundur Níels Óskarsson jafnaði metin á 66. mínútu, 1-1, og Sam Hewson, sem gekk í raðir FH frá Fram í vetur, skoraði sigurmarkið á 69. mínútu.Guðjón Árni Antoníusson var rekinn af velli hjá FH og verður ekki með í undanúrslitaleiknum gegn annaðhvort KR eða Fylki sem mætast á morgun. Þórsarar mæta aftur á móti Breiðabliki sem unnu Pepsi-deildar nýliða Víkings, 1-0, í Fífunni í Kópavogi. Þar skoraði Húsvíkingurinn Elfar Árni Aðalsteinsson eina mark leiksins á 76. mínútu og kom Breiðabliki í undanúrslitin. Undanúrslitin fara á mánudaginn kemur.
Íslenski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira