„Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. október 2026 22:32 María Ben Jónsdóttir missti stjórn á skapi sínu eftir orðaskipti við Stjörnukonuna Evu Wium. Sýn Sport Keflvíkingurinn María Ben Jónsdóttir missti stjórn á skapi sínu eftir orðaskipti við Stjörnukonuna Evu Wium í leik Keflavíkur og Stjörnunnar í síðustu umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta. Körfuboltakvöld skoðaði atvikið betur.
María snöggreiddist eftir eitthvað sem Eva sagði við hana og hrinti Evu hraustlega beint fyrir framan dómarann. Ólöf Helga Pálsdóttir og sérfræðingar hennar í Körfuboltakvöldi gátu ekki annað en hlegið að atvikinu alveg eins og María sjálf gerði þegar hún gekk af velli. „Þetta var svakalegt. Hún veit upp á sig sökina og svo hlær hún bara,“ sagði Ólöf Helga. „Eva er líka góður leikari,“ sagði Ólöf. Klippa: Körfuboltakvöld: Hrinti mótherja fyrir framan dómarann „Eva lítur út eins og hún hafi orðið fyrir rútu og kastar sér aftur á bak,“ sagði Hallveig Jónsdóttir, sérfræðingur Körfuboltakvölds. „María er náttúrulega ekkert eðlilega sterk,“ sagði Ingibjörg Jakobsdóttir, sérfræðingur Körfuboltakvölds. „Ég vil líka nefna það að María átti góðan leik í gær,“ sagði Ólöf og sérfræðingarnir tóku undir það. „Stelpur, við erum búnar að heyra hvað var sagt sem olli þessu en ég held að við megum ekki nefna þetta í sjónvarpi,“ sagði Ólöf. Hefði Hallveig brugðist eins við? „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið,“ sagði Hallveig. „Ég hefði allavega tekið einn góðan ollara [olnbogaskot] á næsta skríni,“ sagði Ingibjörg. „Ef þetta er satt sem fór þarna á milli þeirra þá finnst mér þetta bara líka ógeðslega lélegt af Evu eins og mér finnst hún frábær leikmaður. Hún er orðin ofboðslega flottur leiðtogi og stelpur eru farnar að líta upp til hennar. Hún er líka farin að taka landsliðssæti og þá þarf hún líka að spá aðeins í það sem hún segir og hvernig hún hagar sér,“ sagði Ingibjörg. Hallveig vildi ekki gera eins mikið úr þessu. „Mér finnst þetta bara svo lítið mál. Þetta er einhver lítil hrinding og einhver að kalla einhverja eitthvað ljótt. Mér finnst þetta bara pínu gaman,“ sagði Hallveig en það má sjá hrindinguna og umræðuna hér fyrir ofan.
Bónus-deild kvenna Keflavík ÍF Stjarnan Körfuboltakvöld Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Sjá meira