Sögulegt silfur íshokkílandsliðsins í Serbíu Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. apríl 2014 17:03 Frábær árangur hjá strákunum. Mynd/Vísir
Íslenska landsliðið í íshokkí karla náði sínum besta árangri í sögunni í A-riðli 2. deildar heimsmeistaramótsins í dag þegar það tryggði sér 2. sætið og þar með silfrið. Ísland vann Ísrael í lokaleik sínum í dag, 4-3, eftir vítakeppni en íslensku strákarnir þurftu aðeins jafntefli til að tryggja sér silfrið. Ísrael var einu marki yfir, 3-2, þegar rúmar þrjár mínútur voru til leiksloka en RobinHedström skoraði þá jöfnunarmarkið, 3-3, og fór leikurinn í bráðabana. Bæði lið voru örugg með stig vegna jafnteflsins og Ísland þar með öruggt með annað sætið en þá átti eftir að berjast um aukastigið. Markalaust var í framlengingunni en í vítakeppninni skoraði EmilAlengård eina markið fyrir Ísland og tryggði okkar strákum sigurinn, 4-3. Ísland tapaði fyrsta leiknum gegn langsterkasta liði riðilsins, Eistlandi, 4-1, en vann síðan alla fjóra sem eftir voru. Fyrst voru Belgar lagðir, 6-3, svo Austurríkismenn, 3-2, og Serbar voru kláraðir í síðasta leik eftir vítakeppni, 4-3. Fjórði sigurinn í röð vannst svo á Ísrael í dag.Hér má sjá allt um gengi íslenska liðsins á mótinu.
Íþróttir Mest lesið Guardiola var á undan Haaland með stóru fréttirnar Enski boltinn Óttaðist að drukkna í eigin blóði og ólétta eiginkonan gat ekki horft á Sport Víkingar minnast vinar sem lést á 27 ára afmæli sínu Fótbolti Þurfti að biðja allt liðið afsökunar: „Þetta var ekkert illa meint“ Fótbolti Dómarar tilkynna áhorfendum ákvörðun sína Enski boltinn Viðurkennir að Man. Utd sogist í fallbaráttu: „Mjög erfiðir tímar“ Enski boltinn Newcastle bætti við martröð Man. Utd Enski boltinn Pep kastar inn hvíta handklæðinu og segir liðið þurfa hjálp Fótbolti Anníe Mist, Katrín Tanja og Sara verða saman í liði Sport Snýr aftur til leiks og tekur gallabuxurnar með Sport Fleiri fréttir Gleymdi að sleppa boltanum og felldi sjálfan sig Vatnsbrúsaspark gæti leitt til lengra banns Egill og Garima tennisfólk ársins FBI varar við þjófum sem herja á íþróttafólk Fékk næstum því hjartaáfall í framlengingunni Antonio útskrifaður eftir rúmlega þriggja vikna spítaladvöl Fertugur LeBron gæti spilað „fimm til sjö ár“ til viðbótar Martin stiga- og stoðsendingahæstur í tapi Berlínarmanna Dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að ýta öryggisverði Magnus Carlsen mættur aftur í glænýjum gallabuxum Áfrýjun Barcelona hafnað og tíminn að renna út „Við erum ekki að einbeita okkur að titilbaráttu“ Rooney hættur að þjálfa Guðlaug Victor Sá þriðji í sögunni til að spila fullkominn leik Óttaðist að drukkna í eigin blóði og ólétta eiginkonan gat ekki horft á Víkingar minnast vinar sem lést á 27 ára afmæli sínu Dagskráin í dag: Sportsíldin og Lokasóknin í beinni Littler létt eftir mikla pressu Viðurkennir að Man. Utd sogist í fallbaráttu: „Mjög erfiðir tímar“ Newcastle bætti við martröð Man. Utd Skelltu Chelsea í þriðja sigri sínum á leiktíðinni Dómarar tilkynna áhorfendum ákvörðun sína Tveir Grindvíkingar og Valskona tilnefnd sem Íþróttaeldhugi ársins Gunnlaugur í úrvalslið Evrópu og bestur ásamt Huldu Rashford laus úr útlegð Vann nauman sigur með geitung í hárinu De'Sean Parsons mætir aftur til Hauka Júdó og karate ekki lengur með afrekssérsambönd að mati ÍSÍ Meiddist eftir aðeins eina sekúndu Kostaði hann fjórtán milljónir að nota f-orðið í viðtali Sjá meira