Handbolti

Gunnar Steinn og félagar úr leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gunnar Steinn skoraði þrjú mörk fyrir Nantes.
Gunnar Steinn skoraði þrjú mörk fyrir Nantes. Heimasíða Nantes
Gunnar Steinn Jónsson skoraði þrjú mörk fyrir Nantes sem tapaði 33-24 fyrir löndum sínum í Montpellier í átta liða úrslitunum EHF-bikarsins í handbolta.

Spánverjinn Jorge Maqueda var markahæstur í liði Nantes með átta mörk, en landi hans Alberto Entrerrios skoraði sjö. Dragan Gajic skoraði tíu mörk fyrir Montpellier sem vann fyrri leikinn 26-25 á heimavelli Nantes og einvígið samtals 59-49.

Gunnar Steinn mun leika með Gummersbach á næsta tímabili, en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við þýska félagið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×