Beyoncé ein sú áhrifamesta að mati Time Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 25. apríl 2014 13:00 Beyoncé prýðir forsíðuna að þessu sinni.
Tónlistarkonan Beyoncé prýðir forsíðu Time í dag en nýjasta tölublaðið er tileinkað hundrað áhrifamestu einstaklingum heims. Það er ritstjórn blaðsins sem setur saman listann en listinn í ár er sá ellefti í röðinni. Sheryl Sandberg, einn æðstu yfirmanna Facebook, skrifar um söngkonuna og hrósar henni fyrir vinnu sína í þágu kvenna og fyrir að hvetja konur til að vera sjálfstæðar. Máli sínu til stuðnings nefnir hún hina vinsælu tónleikaferð „Mrs. Carter Show World Tour“, en hana fór söngkonan í á meðan hún var „móðir í fullu starfi“, eins og Sandberg orðar það. Meðal annarra á lista Time má nefna leikarana Lupitu Nyong'o, Benedict Cumberbatch, Amy Adams og Matthew McConaughey, tónlistarkonuna Miley Cyrus, Vladimír Pútín Rússlandsforseta, ruðningskappann Richard Sherman, Frans páfa og uppljóstrarann Edward Snowden, en hann er yngstur á listanum, aðeins þrítugur að aldri. Þá er kaupsýslumaðurinn Carl Icahn sá elsti, en hann er 78 ára. 41 kona er á listanum í ár og er það met að sögn vefsíðu Guardian. Listann í heild sinni má sjá á vefsíðu Time.
Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sjá meira