The Amazing Spider-Man kom út og skartaði hinum hæfileikaríka Andrew Garfield í þrönga búningnum en að mínu mati er Andrew miklu betri í þessu hlutverki en Tobey. Nú er önnur myndin að koma í kvikmyndahús hér á landi og ber hún heitið The Amazing Spider-Man 2.
Eins og Big Mac

En auðvitað held ég mig ekki við þá ákvörðun.
Miðjumyndir í þríleikjum geta verið leikstjórum erfiðar. Það má ekki spýta of mikið í lófana því eitthvað verður að skilja eftir fyrir grand fínalinn. Dark Knight var til að mynda eiginlega of góð til að vera miðjumynd. Talandi um Dark Knight þá er augljóst að Amazing Spider-Man 2 er undir áhrifum þeirrar myndar og tekur meginþema hennar til sín. Sem er missir og það að takast á við missi.
Söguþráður myndarinnar hefur rauðan þráð sem liggur í gegnum hana frá upphafi til enda og það er samband Peters Parker og Gwen Stacy (Emma Stone). Leikurinn þeirra á milli er sannfærandi og kemestrían skín í gegn.
Við fylgjumst með Spider-Man bjarga borginni frá glæpamönnum og sjáum samband hans og Gwen þróast. Inn í þennan ástarþráð blandast svo leit Peters að verkefni sem faðir hans Richard Parker (Campbell Scott) var að vinna að fyrir OsCorp. Svo þarf auðvitað illmenni og stærsta ógn Spider-Man í þessari mynd eru Electro (Jamie Foxx) og Harry Osborn (Dane DeHaan).
Slappt illmenni

Það er þó annað illmenni sem stelur senunni af Jamie og það er Harry Osborn sem Dane DeHaan leikur (það þarf kannski ekki að koma mörgum á óvart að hann verður síðan Green Goblin undir lok myndarinnar). Túlkun hans á Green Goblin er frábær og fólk ætti að fylgjast vel með þessum hæfileikaríka leikara. Þetta er strákur sem á eftir að ná langt.
Myndin er mikið sjónarspil í þrívídd. Kvikmyndatakan og listræna stjórnin er framúrskarandi og má sjá mörg gríðarlega flott atriði. Það er þó greinilegt að verið er að bíða með flugeldasýninguna þangað til í þriðju myndinni því flestir bardagarnir eru bundnir við einn stað og aldrei er sköpuð stór ógn sem hefur áhrif á alla borgarbúa, fyrir utan tímabundið rafmagnsleysi. Þessi ógn er undirstrikuð með því að láta flugvélar missa samband við flugturn. Hollywood nýtir sér tenginguna á milli 11. September og flugvéla þarna vel. Geri ráð fyrir að New York búar hræðist ekkert meira en stjórnlausar flugvélar.
Ég geri fastlega ráð fyrir því að í þriðju myndinni muni áhorfendur fá að sjá stærri sprengingar og hamfarir, ekki ólíkt því sem við sáum í The Dark Knight Rises. Því þó svo að sjónarspilið sé mikið þá hef ég séð það betra.

Málið er bara að þegar á öllu er botninn hvolft þá er Big Mac alltaf jafn góður þó svo að erfitt sé að viðurkenna það. The Amazing Spider-Man 2 er því eins og djúsí Big Mac með stórum frönskum og ískaldri kók. Eitthvað sem allir verða að troða í kjaftinn á sér.
3 þungar stjörnur