Snæfell fær Austin Magnus Bracey frá Hetti Tómas Þór Þórðarson skrifar 18. maí 2014 22:45 Austin Magnus spilar með Snæfelli næsta vetur. Mynd/austurfrétt.is
Dominos-deildarlið Snæfells gekk í kvöld frá samningi við bakvörðinn Austin Magnus Bracey sem kemur til liðsins frá 1. deildar liði Hattar á Egilsstöðum. Austin Magnus er sonur Valray Bracey sem kjörinn var besti erlendi leikmaður úrvalsdeildarinnar árið 1982 þegar hann spilaði með Fram. Hann á íslenska móður og er með íslenskt ríkisfang. Hann hefur leikið með Hetti undanfarin tvö ár og var lykilmaður hjá austfirðingum í vetur en liðið mætti Fjölni í lokaúrslitum umspils um laust sæti í Dominos-deildinni. Austin Magnus skoraði að meðaltali 22,1 stig í leik í 1. deildinni í vetur, tók 4 fráköst og gaf 5,1 stoðsendingu. Hann var stoðsendinga- og framlagshæstur hjá Hetti á síðasta tímabili og bætti sig bæði í stigaskorun og stoðsendingum frá síðasta tímabili. „Við erum sáttir að ná honum. Við erum að missa Jón Ólaf [Jónsson [Nonna Mæju] og erum að ganga í gegnum smá breytingar. Því er sterkt fyrir okkur að fá Austin í bakvarðarstöðuna. Svo erum við bara á fullu að reyna tefla fram nýju liði og klára þau mál,“ segir Ingi Þór Steinþórsson í samtali við Vísi.
Dominos-deild karla Mest lesið Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Segir Horner vera að trufla Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Sjá meira