Bragðaðu einn bita áður en þú segir að þetta sé vont Guðrún Elín Herbertsdóttir og Halldór Jörgensson skipa 1. og 2. sæti á lista Bjartrar framtíðar í Garðabæ skrifar 26. maí 2014 16:19 „Af hverju ert þú í pólitík“? Þessa spurningu fáum við oft þegar við segjum frá því að við séum gengin í Bjartra framtíð í Garðabæ og á leið í framboð til sveitastjórnakosninga. Við, sem höfum samt enga reynslu í stjórnmálum, finnum þörf til að leggja okkar að mörkum, leita upplýsinga og taka þannig virkan þátt í samfélaginu okkar. Við töldum það kost að hafa enga sögu og ný sjónarhorn sem gætu leitt til nýrra og betri lausna.VæntingarnarVið vissum að það væri á brattann að sækja vegna sterks meirihluta og lítils sjáanlegs ágreinings innan bæjarfélagsins. Hugsanlega eitthvað lítilræði sem útskýrði þessar fáu neikvæðu raddir sem maður heyrði stundum í. Flestar þjónustukannanir sýna jú fram á að allt sé svo gott. Margt er svo sannarlega gott í Garðabæ og sumt er meira að segja alveg frábært. Við fundum hinsvegar að raddir óánægðra íbúa sem héldu einhverju öðru fram urðu sífellt fleiri. Eftir því sem við kynntum okkur málin betur og ræddum náið við fleiri bæjarbúa var ljóst að ekki var allt eins og það sýndist.LærdómurinnÞað líður ekki öllum vel í Garðabæ. Sjálfsagður réttur fólks er ekki virtur, þjónusta við þá sem svo sannarlega þarnast hennar er í lágmarki og stundum alls ekki í boði. Við búum í bæ sem er fyrir suma, bæ sem líkist sérfélagi en ekki samfélagi. Rekstrarlega séð stendur bærinn mjög vel enda bæjarbúar að meðaltali mjög tekjuháir en greiða líka svo há þjónustugjöld að hagurinn af lága útsvarinu nýtist varla. Handahófskenndar ákvarðanir eru teknar í skipulagsmálum án samráðs við alla þá sem að borðinu eiga að sitja. Stundum er framkvæmt án þess að leita bestu kjara. Þetta sést á útgjaldaliðum bæjarins sem er í flestum málaflokkum hærri en hjá nágrannasveitarfélögum. Við höfum líka lært að í bænum býr einstaklega gott og fjölbreytt fólk. Fólkið er stolt af bænum sínum.Halldór Jörgensson skipar 2. sæti á lista Bjartrar framtíðar í Garðabæ.Þegar skoðaðar eru kannanir um viðhorf Garðbæinga til ýmissa málaflokka kemur oftast í ljós að þeir telja ástandið betra en mælist á landsvísu og betra en það raunverulega er. Upplýsingar sem streyma til bæjarbúa ganga helst út á það að segja hvað allt er gott og kerfsbundið forðast að tala um óþægileg mál. Það er eins og að um sum mál ríki þöggun. Vandamálum er sópað undir teppi eða jafnvel send til annarra sveitarfélaga. Fólk virðist ekki ræða málefni bæjarins sín á milli. Það er heldur enginn vettvangur til í Garðabæ fyrir fólk að hittast og spjalla. Skipulag bæjarins virðist ganga út á stórkostlegt félagslíf fyrir bíla enda ofuráhersla lögð á bílastæði og bílastæðakjallara á kostnað annarra samgöngumáta. Bílarnir geta því haft það gott og notið samvista á rúmgóðum bílastæðum en bílstjórar og fólk almennt hefur engann reit til að koma saman og spjalla. Einhvers konar menningarleg eyðimörk. Það eru eftir allt vandamál í Garðabæ og þau eru fleiri og rista dýpra en okkur datt nokkurn tímann í hug. Vandamál sem þarf að leysa í samvinnu og sátt. Afneitun er slæm og til lengdar þróar bæjarfélag í afneitun með sér hin dæmigerðu skapgerðareinkenni fíkils eða fjölskyldu fíkilsins. Allt er gert til að fela sjúkdóminn og afneita vandamálunum. Meðvirknin tekur völdin.Af hverju Björt framtíð?Allir eiga að hafa val. Við bjóðum valkost sem gengur ekki út á langa lista loforða, heldur einlægan áhuga á að hlusta, læra og leysa þau vandamál sem að steðja í samvinnu og sátt. Við bjóðum nýja nálgun sem virkjar hugmyndir og krafta íbúanna. Við þekkjum af eigin raun hvað má ná miklum árangri með æðruleysi, heiðarleika og hugrekki að leiðarljósi. Aukum lífsgæðin, styðjum lífshlaupið og tryggjum lífsréttindin. Bragðaðu einn bita áður en þú segir að þetta sé vont og kjóstu Æ í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Forsetakosningar 2016 Skoðun Kosningar 2014 Höfuðborgarsvæðið Mest lesið Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
„
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar