Fótbolti

Sölvi Geir: Ætla að vinna sætið mitt aftur

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Sölvi Geir Ottesen er í góðu formi eftir að spila reglulega í Rússlandi.
Sölvi Geir Ottesen er í góðu formi eftir að spila reglulega í Rússlandi. Vísir/arnþór
Sölvi Geir Ottesen, miðvörðurinn öflugi, kom aftur inn í byrjunarlið íslenska landsliðsins í kvöld í jafnteflinu gegn Austurríki í Innsbruck. Honum fannst leikurinn bera þess merki að menn væru búnir að vera í smá fríi eftir að deildarkeppnunum lauk.

„Ég var alveg þokkalega ánægður með þetta. Spilamennskan hefur oft verið betri en það eru allir búnir að vera í fríi og það var svona þannig bragur á leiknum. Austurríki er samt mjög sterkt lið og svipað að styrkleika og Tyrkland og Tékkland þannig það var gott að halda í við þá,“ sagði Sölvi í samtali við Vísi eftir leik.

„Við sýndum sterkan varnarleik og úrslitin eru góð. Við værum alltaf sáttir við jafntefli við svona lið á útivelli í undankeppni. Taka eitt stig úti og þrjú heima.“

Sölvi missti stöðu sína í landsliðinu í síðustu undankeppni þar sem hann var lítið að spila með sínu félagsliði. Hann skipti frá FCK til Ural í Rússlandi þar sem hann hefur spilað mikið og staðið sig vel.

Heimir Hallgrímsson, annar landsliðsþjálfara Íslands, hrósaði Sölva af fyrra bragði í samtali við Vísi eftir leikinn og Víkingurinn var ánægður með eigin spilamennsku.

„Ég gat ekkert kvartað í undankeppninni því ég var lítið að spila með mínu félagsliði. En nú er ég að spila reglulega og spila mun betur. Mér fannst ég standa mig mjög vel í kvöld og ég ætla að reyna að vinna sætið mitt aftur í þessu liði,“ sagði Sölvi við Vísi.

Sölvi var orðinn mjög þreyttur undir lok leiksins var skipt af velli. Leikurinn var erfiður fyrir varnarmenn íslenska liðsins þar sem það austurríska pressaði stíft, sérstaklega í fyrri hálfleik.

„Við vorum að tapa boltanum alltof oft og fá á okkur margar skyndisóknir. Ég var alveg búinn á því í fyrri hálfleik. Við vorum mikið að hlaupa aftur á bak með leikmenn keyrandi á okkur. En við héldum boltanum mun betur í seinni hálfleik og náðum góðum úrslitum sem gefur okkur sjálfstraust,“ sagði Sölvi Geir Ottesen.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×