Skoðun

Pólitískar getnaðarvarnir

Ragnar Hansson skrifar
Það les enginn pólitíska pistla nema fólk sem pælir* í pólitík.

Ekki láta það þá koma þér á óvart ef þessi pistill er vaðandi í málfræðivillum. Ég las hann líklega ekki yfir áður en ég sendi hann inn.

*Pælir = Flokksbundið í hugsun.

Ég hef ekki gengið Suðurpólinn eða klifið Everest, en á móti geta ekki allir sagt að þeir hafi klifið það andlega fjall að ganga upp að ókunnugri manneskju í verslunarmiðstöð og rétta henni kosningasnepil með bros á vör.

Þú getur alveg eins sparað þér tíma og hvíslað í eyra hennar: „Ég veit hvar þú átt heima.“ Það myndi hafa svipuð áhrif.

Já. Það þarf vissa týpu í þannig, en nú er ég sú týpa. Og það hefur komið mörgum á óvart. Ekki síst mér sjálfum.

Sumir hafa jafnvel játað fyrir mér að þeir höfðu ekki hugmynd um að ég „pældi“ í stjórnmálum, því ég „talaði aldrei um þau.“

Athyglisvert.

Ég pæli mjög mikið í stjórnmálum og ræði þau oft, þó ég hafi sjaldnast talað um flokka. Alveg eins tala ég oft um heimspeki, án þess þó að tala um Nietzsche eða Kirkegaard. Og stundum tala ég jafnvel um tónlist heilu tímana án þess að minnast einu orði á U2 eða Tinu Turner.

Pólitík á ekki heima í boxi. Pólitík er hugmyndafræði. Pólitík er heimspeki. Og það á enginn stjórnmálaflokkur hana.

Það er þó til fólk sem hefur tekið þá ákvörðun í lífinu að fylgja einum flokki eins og hann væri fótboltalið. Fullt af fólki. Þátttaka margra í stjórnmálaumræðu snýst því meira um að tína saman vopn til að verja þessar ákvarðanir en að vera opin fyrir nýjum.

Þetta tekur annars frjóa umræðu og síar í gegnum pólitíska getnaðarvörn sem heftir á áhrifaríkan hátt fæðingu nýrra hugmynda.

Með Besta flokknum og Bjartri framtíð smaug ég framhjá verju hins hefðbundna flokkakerfis og varð pólitískt slysabarn. Skot í myrkri. Aldrei datt mér í hug að ég myndi taka þátt í nokkru starfi tengdu stjórnmálum, en þótt ótrúlegt megi virðast þá fann ég mér heimili með öðrum óskilgetnum pólitískum bastörðum sem töluðu tungumál sem ég skildi og tóku allskonar pælingum fagnandi.

Pólitík er ekki lobbíismi einhverrar einnar stefnu og hún gengur ekki út á hagsmuni neinna annarra en samfélagsins. Samfélagsins alls. Og samfélagið er ekki það svart og hvítt að stefna þess til framtíðar megi fást með vinstri eða hægri beygjum eingöngu.

Í upphafi þessa pistils alhæfði ég að enginn læsi svona nema þeir sem væru fastmótaðir í sínum pælingum. Reynist það satt þá er þeim frjálst að nota pistilinn þeim til varnar. Örugglega ágætt vopn líka, þar sem alhæfingin ein og sér dæmir hann algerlega ómarktækan.

En með von um að alhæfingin standist ekki þá hvet ég alla að hafa opinn og frjóann hug í kjörklefanum og að setja sitt X út fyrir boxið.

Þó ekki bókstaflega, því það myndi ógilda seðilinn!



Ragnar Hansson skipar 5. sæti á lista Bjartrar framtíðar í Reykjavík. Hér bloggar hann um atvinnuumsókn sína í borginni.


Tengdar fréttir

Hversu mikilvæg er mentun?

Fyrirsögnin á þessari grein er spurning sem svarar sér sjálf: Já, menntun er mikilvæg - og já, ég veit hvernig "menntun“ er skrifað. En spurningin er kannski frekar: Hvernig er mikilvægið mælt?




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×